Fréttir frá 2015

04 25. 2015

Styrkveitingar á þingi RSÍ 2015

rafidnadarsambandidDagana 7. - 9. maí næstkomandi verður 18. þing Rafiðnaðarsambands Íslands haldið í Reykjavík. Á þingum RSÍ er hefð fyrir því að veita tvo til þrjá veglega styrki til góðra málefna.

Hvetjum við þá aðila sem vita um góð málefni sem RSÍ ætti að styrkja að þessu sinni að senda inn styrkumsóknir eða benda viðkomandi aðilum á að senda inn styrkumsóknir.

Umsóknir má senda á kristjan@rafis.is og "subject" þarf að vera "Þing 2015 - styrkumsókn". Nauðsynlegt er að segja frá starfsemi viðkomandi og til hvaða verkefna mögulegur styrkur yrði nýttur. Valnefnd fer yfir allar styrkumsóknir á þinginu.

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?