Fréttir frá 2015

04 22. 2015

Ný stjórn FÍR komin til starfa

firÍ kjölfar aðalfundar FÍR sem haldinn var í kvöld hefur ný stjórn félagsins tekið við. RSÍ býður nýja stjórn velkomna í hópinn og hlakkar til komandi samstarfs. Þess má geta að fyrr í dag tóku nýjir stjórnarmenn FÍR sæti í samninganefnd RSÍ vegna almenna samningsins þar sem farið var yfir stöðu kjaramála í dag og þá kröfugerð RSÍ sem lögð var fram 18. júní 2014 sem og kröfurnar um launaliðinn sem iðnaðarmannasamfélagið lagði fram föstudaginn 13. mars síðastliðinn.

RSÍ þakkar jafnframt fráfarandi stjórn fyrir gott samstarf á undanförnum árum.

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?