Fréttir frá 2015

03 5. 2015

Sumar 2015 Orlofshús

Apavatn2009(11)Orlofsvefurinn er nú opinn fyrir umsóknir um dvöl í orlofshúsum og leigu tjaldvagna í eigu RSÍ sumarið 2015. Umsóknartímabilið er frá 1.mars til 31.mars, sótt er um dvöl í orlofshúsi eða tjaldvagn á tímabilinu frá 29.maí til 28.ágúst.

 Félagsmenn sækja um á orlofsvefnum, hægt er að skrá í umsóknina allt að 10 möguleikum um stað og tíma. Í boði eru orlofshús um land allt og dvalartími er ein vika í senn, skiptidagar eru föstudagar. Útleiga tjaldvagna er frá hádegi á föstudegi til hádegis á fimmtudegi.

Úthlutað verður rafrænt og ræður punktastaða félagsmanna hver niðurstaða úthlutunar verður, þ.e. hæsta punktastaða umsækjenda fær úthlutað á hverjum stað og tíma.
Öllum umsækjendum verður sendur netpóstur um niðurstöðuna og eru félagsmenn beðnir um að skoða „Síðan mín“ á orlofsvefnum hvort skráning netfangs sé rétt.

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?