Fréttir frá 2015

02 25. 2015

Fréttatilkynning félaga iðnaðarmanna

Samkomulag iðnaðarmannaLandssambönd og félög iðnaðarmanna með um 18.000 félagsmenn hafa gert með sér samkomulag um samstarf í komandi kjaraviðræðum. Samkomulagið tekur m.a. til framsetningar á kröfum og markmiðum í aðalkjarasamningum félaganna við SA, samstilltra verkfallsaðgerða og samráðs á vettvangi ASÍ.
Krafa iðnaðarmanna í komandi kjaraviðræðum er endurskoðun á launakerfum iðnaðarmanna með það að markmiði að dagvinnulaun dugi til framfærslu.

Hún næst meðal annars með því að auka framleiðni og stytta vinnutíma. Núverandi launakerfi byggir á lágum grunnlaunum sem neyðir launamenn til að halda uppi afkomu sinni með mikilli yfirvinnu. Mikil þörf er fyrir nýliðun í greinunum en þetta vinnufyrirkomulag er úrelt og hefur skapað starfsumhverfi sem höfðar ekki til ungs fólks. Iðnaðarmenn gera kröfu um fjölskylduvænt samfélag þar sem jafnvægi er á milli vinnutíma og einkalífs.
Félögin telja afar brýnt að unnið verði að fyrirbyggjandi aðgerðum til að koma í veg fyrir félagsleg undirboð á íslenskum vinnumarkaði og komið verði á víðtækara vinnustaðaeftirliti.
Að samkomulaginu standa:
Rafiðnaðarsamband Íslands, SAMIÐN, Félag bókagerðarmanna, MATVÍS, Félag hársnyrtisveina og VM -
Félag vélstjóra og málmtæknimanna.

Reykjavík, 24. febrúar 2015

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?