Fréttir frá 2013

12 21. 2013

Kjarasamningur RSÍ - SA/SART undirritaður í kvöld

Logo RSÍÍ kvöld var skrifað undir kjarasamninga á almennum vinnumarkaði (kjarasamningur RSÍ - SA/SART). Félög innan Alþýðusambands Íslands gerðu sambærilegan kjarasamning fyrir félagsmenn. Kjarasamningurinn gildir til 31. desember 2014 og er markmið með samningunum að stuðla að auknum stöðugleika í íslensku hagkerfi. Kjarasamningarnir einir og sér duga ekki til þess enda hafa verðskrárhækkanir fyrirtækja, sveitarfélaga og ríkis meiri áhrif á verðbólgu en hluti af heildarmyndinni er einmitt að þessir aðilar haldi að sér höndum þegar kemur að því að hækka verð. Sjálfvirkar gjaldskrárhækkanir þurfa að stoppa og hafa fjölmörg sveitarfélög tekið fyrsta skrefið í þá átt með því að falla frá gjaldskrárhækkunum. 

Stór liður í samningunum er að aðilar hafa skrifað viðræðuáætlun næstu lotu inn í samninginn og munu aðilar setjast að borðunum strax í janúar mánuði ef kjarasamningar verða samþykktir af félagsmönnum. Viðræðurnar eru síðan tímasettar út samningstímann. Kjarasamningarnir miða að því að auka kaupmátt launa. Til viðbótar hafa verið gerðar breytingar á skattkerfi sem eykur ráðstöfunartekjur heimilanna.

Helstu niðurstöður eru eftirfarandi:

Kaupliðir

Almenn launahækkun
Hinn 1. janúar 2014 skulu laun hækka um 2,8%, þó að lágmarki kr. 8.000 á mánuði fyrir dagvinnu miðað við fullt starf. Aðrir kjaratengdir liðir hækka um 2,8% á sama tíma.

Sérstök hækkun kauptaxta
Í stað áðurgildandi kauptaxta komi nýir sem eru hluti samninga viðkomandi aðildarsamtaka ASÍ. Launataxtar undir 230.000 kr. á mánuði hækka sérstaklega um 1.750 kr. Kauptaxtar gilda frá 1. janúar 2014.

Lágmarkstekjur fyrir fullt starf
Lágmarkstekjur fyrir fullt starf skv. kjarasamningum viðkomandi aðildarsamtaka ASÍ skulu vera kr. 214.000 frá 1. janúar 2014 fyrir starfsmenn 18 ára og eldri sem starfað hafa fjóra mánuði samfellt hjá sama fyrirtæki.

Desember- og orlofsuppbót
Desemberuppbót miðað við fullt starf er á árinu 2014 kr. 53.600.
Orlofsuppbót (1.maí til 30. apríl) miðað við fullt starf er á árinu 2014 kr. 29.500.

Framlög til fræðslu- og starfsmenntasjóða hækka um 0,1%.


Helstu ávinningar samningsins

- Almenn launahækkun.

- Sérstök áhersla á hækkun lægstu launa.

- Aukið fjármagn og kraftur settur í starfsmenntamál.

- Efri mörk í lægsta þrepi tekjuskatts hækka úr 256.000 kr. í 290.000 kr. Skatthlutfall í miðþrepi lækkar úr 25,8% í 25,3%.

- Stærstu sveitarfélög landsins hafa tekið áskorun verkalýðshreyfingarinnar og hækka ekki gjaldskrár sínar um áramót.

- Gjaldskrárhækkanir ríkisins verða ekki meiri en 2,5% á ári, ríkisstjórnin mun endurskoða breytingar á gjöldum sem þegar hafa verið samþykktar.

- Unnið verði að því að við framkvæmd kjarasamninga verði miðað við umfrang umsaminna launahækkana ásamt samningsbundnum starfsaldurshækkunum og starfsþróunar þannig að hún samrýmist verðbólgumarkmiðum Seðlabanka Íslands.

- Ráðist verður í markvissar aðgerðir til stuðnings kaupmætti.

- Samstilltar aðgerðir samningsaðila til að halda verðbólgu innan 2,5% markmiðs Seðlabanka Íslands.

 
Kjarasamning aðildarsamtaka ASÍ og SA má lesa í heild sinni hér.
 
Yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við gerð kjarasamninganna má sjá hér

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?