Fréttir frá 2013

12 5. 2013

Kjaraviðræðum á vettvangi ASÍ hætt

ASI 500xSamninganefnd ASÍ hefur á undanförnum vikum unnið að því að leggja grunn að aðfarasamningi við Samtök atvinnulífsins, þar sem þess yrði freistað að ná auknum kaupmætti, tryggja stöðugleika í efnahagsmálum og lágri verðbólgu. Ágætur árangur hefur náðst um umgjörð slíks samnins. Í dag kom hins vegar í ljós djúpstæður ágreiningur við SA um launalið væntanlegs samnings, sérstaklega það sem snýr að hækkun lægstu launa. Svo langt er á milli aðila að samninganefnd ASÍ telur forsendur brostnar fyrir þeirri leið sem átti að varða. SA hafnar þeirri kröfu ASÍ að hækka lægstu laun um ákveðna krónutölu. Því hefur samninganefnd ASÍ tilkynnt SA að viðræðum á þessum grunni sé hætt. Framhald viðræðna um gerð nýrra kjarasamninga er á höndum aðildarsamtaka ASÍ.

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?