Fréttir frá 2013

09 27. 2013

Staða kjaraviðræðna og samskipti við stjórnvöld

Nú þegar aðilar vinnumarkaðarins eru að undirbúa gerð kjarasamninga er eðlilega horft til stöðu þjóðarbúsins og hvert það stefni á næstu mánuðum enda taka launahækkanir mið af þeim verðlagsbreytingum sem hafa orðið og væntanlegar eru. Hávær krafa hefur á undanförnum árum verið að auka kaupmátt launa og að sjálfsögðu verður jafnframt horft til þess nú að einhverju leyti sem og að rýnt verður í hverjar ráðstöfunartekjur heimilanna verða við gerð þessara kjarasamninga.

Á sama tíma leita aðilar allra leiða til þess að kalla fram skýra sýn á væntanlega stöðu og vilja rýna í framtíðarsýn stjórnvalda. Aðilar hafa jafnframt kallað eftir samstarfi um ýmis mál og má þar nefna óháða úttekt á stöðu aðildarviðræðna við ESB. Töldu aðilar er standa að ASÍ, þar á meðal fulltrúar Rafiðnaðarsambands Íslands, það vænlegast til árangurs fyrir þjóðina að staðan yrði metin í heild sinni þannig að þjóðin yrði upplýst hversu miklu hefur verið lokið og hversu langt ferli yrði fyrir höndum. Afstaða samtakanna hefur jafnframt verið sú að æskilegast væri að ljúka þessum viðræðum með sem hagstæðustum samningi og þjóðin tæki að lokum afstöðu til þessara mála. Það á ekki að vera í höndum fárra einstaklinga sem sitja í ríkisstjórn að taka þá ákvörðun.

Eitt stærsta og mikilvægasta málefni er snýr að launþegum þessa lands er gjaldmiðill þjóðarinnar. Í dag hafa flest fyrirtæki sem eru í útflutningsgreinum tekið upp annan gjaldmiðil í viðskiptum enda þola fyrirtæki illa þær sveiflur sem hafa verið á íslensku krónunni á undanförnum áratug. Það er jafnframt mat aðila að ef við ætlum að byggja á stöðugleika til framtíðar þá verði það ekki gert á meðan gjaldmiðillinn er óstöðugur. Verðmæti útflutnings sveiflast í samræmi við þann gjaldmiðil. Samanburður launa sveiflast í samræmi við gjaldmiðilinn. Vöruverð í landinu sveiflast í samræmi við gjaldmiðilinn. Allt þetta eykur óstöðugleika.

Nú er það svo að forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar vilja alls ekki samtal um nein málefni sem eru þeim ekki að skapi. Alls ekki má ræða málefni sem eru launþegum til hagsbóta. Alls ekki!

Þau málefni sem má taka til umræðu eru málefni sem talin eru upp í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og stjórnin getur stutt, annað ekki. Óháð úttekt má ekki fara fram á stöðu aðildarviðræðna enda eina mögulega óháða úttektin getur verið gerð af hálfu ríkisstjórnarinnar, að þeirra mati.

Ríkisstjórn hefur ekki sýnt fram á stefnu í gjaldmiðlamálum aðra en þá að loksins séu komnir til valda menn sem geti stýrt íslensku krónunni. Af hverju ætti það að ganga í dag eftir tæplega aldarhrun gjaldmiðilsins? Sú stefna bendir ekki til þess að verðbólga verði lág hér á landi á komandi árum. Engar vísbendingar eru um að krónan eigi eftir að styrkjast á næstu árum, síður en svo þá bendir flest til þess að hún muni gefa eftir. Seðlabanki Íslands hefur enga framtíðarsýn á verðlags- né gengismálum aðra en að staðan lagist að þremur árum liðnum enda eiga þeir að stefna að lægri verðbólgu innan þess tímaramma. Engin raunveruleg úrræði eða tillögur frá þeim standa til boða sem gætu leitt okkur á veg stöðugleika á næstu 10 árum.

Ég tel nokkuð ljóst að staðan sem ég lýsi gefur mér ekki miklar vonir um að mikið samstarf verði á milli aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda. Þrátt fyrir að staðan sé afar viðkvæm. Mikilvægi þess að aðilar setjist niður og móti sameiginlega stefnu til framtíðar þar sem markmiðið væri að tryggja stöðu launþega til framtíðar. Grundvallaratriði í slíkri samræðu er traust og trúnaður. Traust þarf að byggja upp og verður ekki gert á einni nóttu.

Kristján Þórður Snæbjarnarson
Formaður Rafiðnaðarsambands Íslands

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?