Fréttir frá 2013

09 26. 2013

Skoðanakönnun vegna væntanlegra kjarasamninga

Logo RSÍNú er skoðanakönnun vegna væntanlegra kjarasamninga virk. Könnunin er framkvæmd með sambærilegum hætti og um síðustu áramót nema að nú sendum við öllum virkum félagsmönnum bréf heim þar sem við bendum á innskráningarsíðu og birtum viðkomandi lykilorð sem þarf að slá inn til þess að taka þátt. Þessi könnun er nafnlaus og ekki er hægt að rekja svör til viðkomandi. Eingöngu er hægt að taka þátt einu sinni.

Við hvetjum alla félagsmenn til þess að taka þátt í könnuninni og þar með geta félagsmenn haft bein áhrif á kröfugerð okkar. Rétt er að benda á að spurningar hafa verið mótaðar á félagsfundum víðsvegar um landið á síðustu tveimur vikum.

Til þess að taka þátt þá þarft þú að fara inn á vefsvæðið www.rafis.is/konnun þar kemur innskráningarsíða þar sem þú skráir inn lykilnúmer sem þú hefur fengið úthlutað og annars vegar verið sent til þín í bréfpósti en jafnframt getur þú, hafir þú félagsskírteini við höndina, séð lykilnúmerið á félagsskírteininu.

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?