Fréttir frá 2013

09 19. 2013

Algengt að verðmunur á hæsta og lægsta verði á fiskafurðum milli verslana sé 75% eða meira

Vertu a verdi 2Í nýrri könnun ASÍ á fiskafurðum kemur í ljós að verðmunurinn á hæsta og lægsta verði er að lágmarki 75%. Könnunin var gerð í 25 fiskbúðum og öðrum verslunum með fiskborð, víðsvegar um landið sl. mánudag. Kannað var verð á 23 algengum tegundum af fiskafurðum. Melabúðin neitaði þátttöku í könnuninni.

Lægsta verðið var oftast að finna hjá Litlu Fiskbúðinni Miðvangi Hafnarfirði eða í 14 tilvikum af 23, fiskbúðin Fiskás Hellu var næst oftast með lægsta verðið eða í 3 tilvikum af 23. Meiri dreifing var á hæsta verðinu á milli verslana. Hæsta verðið var hjá Hafbergi Gnoðavogi í 5 tilvikum af 23, hjá Fiskbúðinni Mos Mosfellsbæ í 4 tilvikum af 23 og hjá Hagkaupum og Fiskbúðinni Höfðabakka í 3 tilvikum.
Enginn söluaðli átti til allar 23 tegundirnar sem skoðaðar voru í könnuninni en Hafberg átti 22 tegundir og Litla fiskbúðin og Fiskbúðin Hófgerði áttu 21. Fæstar tegundirnar sem skoðaðar voru, voru til hjá Fylgifiskum Suðurlandbraut eða aðeins 5 af 23.

Munur á hæsta og lægsta verði í könnuninni var frá 24% upp í 114%. Mestur verðmunur í könnuninni var á meðalkæstri skötu sem var dýrust á 1.690 kr./kg. hjá Fiskbúðinni Höfðabakka, en ódýrust á 790 kr./kg. hjá Hafinu Hlíðarsmára en það gerir verðmun upp á 900 kr. eða 114%.
Minnstur verðmunur var á roðflettu og beinlausu þorskflaki sem var ódýrast á 1.490 kr./kg. hjá Fisk kompaní Akureyri og fiskbúðinni Fiskás en dýrust á 1.845 kr./kg. hjá Fjarðarkaupum Hafnarfirði, en það gerir 355 kr. verðmun eða 24%.

Roðflett og beinhreinsað ýsuflak sem var til hjá öllum verslunum var ódýrast á 1.590 kr./kg. hjá fiskbúðinni Fiskás og Litlu fiskbúðinni en dýrast á 1.990 kr./kg. hjá Hafbergi og Fiskbúðinni Höfðabakka sem er 25% verðmunur.

Sjá nánar í töflu, smellið hér.

Könnunin var gerð í eftirtöldum verslunum: Fylgifiskum Suðurlandsbraut, Fiskbúðinni Sundlaugavegi, Fiskbúðinni Hafberg Gnoðavogi, Þinni verslun Seljabraut, Fisk kompaní Akureyri, Fiskikónginum Sogavegi, Fiskbúðinni Hafrúnu Skipholti, Fiskbúðinni Fiskás Hellu, Samkaupum Úrval Hafnarfirði, Nettó Granda, Fjarðarkaupum Hafnarfirði, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Fiskbúðinni Höfðabakka, Litlu Fiskbúðinni Miðvangi, Fiskbúð Suðurlands Selfossi, Hafinu fiskverslun Hlíðasmára, Nóatúni Hringbraut, Fiskbúð Hólmgeirs Þönglabakka, Gallerý fisk Nethyl, Fiskbúðinni Hófgerði, Fiskbúð Sjávarfangs Ísafirði, Fiskbúðinni Mos Mosfellsbæ, Fiskbúð Siglufjarðar, Fiskbúðinni Vegamótum og Hagkaupum Kringlunni.
Melabúðin neitaði þátttöku í könnuninni.

Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.

Óheimilt er að vitna í þessa könnun í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?