Fréttir frá 2013

09 9. 2013

Vörukarfa ASÍ hækkaði um 3% á rúmum mánuði

vertu a verdiVörukarfa ASÍ hækkaði um 3,2% hjá Kaupfélagi Skagfirðinga frá því í júlí (viku 28) þar til nú í lok ágúst (viku 35). Ef þessi hækkun Kaupfélags Skagfirðinga væri dæmigerð fyrir aðra mánuði ársins samsvaraði hún ársverðbólgu upp á 26%. Á þessum 7 vikum hækkaði vörukarfan hjá 9 verslunum af 15. Vörukarfan lækkaði hjá 6 verslunum, mest hjá Tíu-ellefu. Vörukarfan stóð í stað hjá Samkaupum-Úrvali.

Verð á vörukörfu ASÍ hækkaði mest hjá Kaupfélagi Skagfirðinga eins og áður segir (3,2%), en einnig hjá Víði (2,5%), Nóatúni (2,1%), Iceland (2%), Bónus (0,8%), Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga (0,7%), Nettó (0,6%) og hjá Samkaupum-Strax og Kaskó (0,4%). Vörukarfan lækkaði mest hjá Tíu-ellefu (-1,2%), Krónunni (-0,9%), Hagkaupum (-0,6%), Kjarval (-0,4%) og hjá Kaupfélagi Steingrímsfjarðar (-0,1%). Engar verðbreytingar voru á vörukörfunni hjá Samkaupum-Úrvali.

Vorukarfa viku 28 til 35


Breytingar í öllum vöruflokkum
Í töflunni hér að neðan má sjá verðbreytingar á milli mælinga í einstaka vöruflokkum, töluverðar verðbreytingar eru í öllum vöruflokkum hjá öllum verslunum. Sem dæmi um hækkun má nefna að vöruflokkurinn ýmsar matvörur (sem innihalda m.a. sósur, krydd, fisk og feitmeti) hefur hækkað hjá 12 verslunum af 15, mest hjá Kaupfélagi Skagfirðinga um (6,9%), hjá Iceland um (6,8%) og hjá Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga um (6,6%), en lækkar mest hjá Tíu-ellefu um (8,5%). Hreinlætis- og snyrtivörur hafa einnig hækkað í verði hjá 12 verslunum af 15, mest hjá Nóatúni um (7,7%) og Kaupfélagi Skagfirðinga (4,1%), en lækkar hjá Iceland um (2,5%) og hjá Kjarval um (2,0%). Bónus og Nóatún eru einu verslanirnar sem hafa hækkað verð á öllum vöruflokkum.

tafla vika 28 til 35

 

Verðlagseftirlitið mælir breytingar á verði vörukörfu sem getur endurspeglað almenn innkaup meðal heimilis. Vörukarfa ASÍ inniheldur allar almennar mat- og drykkjarvörur, t.d. brauðmeti, morgunkorn, pasta, kjöt, fisk, grænmeti, ávexti, pakkavörur, kaffi, gos, safa, auk hreinlætis- og snyrtivara. Við samsetningu vörukörfunnar voru hafðar til hliðsjónar vogir Hagstofunnar sem notaðar eru til útreiknings á vísitölu neysluverðs. Vogirnar segja til um hversu stór hluti tilteknir vöruflokkar eru af neyslukörfu meðal heimilis.

Verðbreytingar voru skoðaðar í eftirfarandi verslunum: Í lágvöruverðsverslunum Bónus, Krónunni, Nettó og Iceland; í almennu matvöruverslununum Hagkaupum, Nóatúni og Samkaupum-Úrvali, Tíu-ellefu, Samkaupum-Strax og Víði; í verslunum staðsettum á landsbyggðinni Kjarval, Kaskó, Kaupfélagi Skagfirðinga, Kaupfélagi Steingrímsfjarðar og Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga.

Þess ber að geta að hér eru einungis birtar upplýsingar um verðbreytingar milli verðmælinga. Ekki er því um beinan verðsamanburð að ræða þ.e.a.s. hvar ódýrustu vörukörfuna var að finna. Einnig er rétt að athuga að skoðuð eru þau verð sem eru í gildi í verslununum á hverjum tíma og geta tilboð á einstaka vöruliðum því haft áhrif á niðurstöðurnar.

Óheimilt er að vitna í niðurstöðurnar í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?