Fréttir frá 2013

09 3. 2013

Síðsumarsmótið 2013

GolfHið árlega hjóna- og paramót verður á Haukadalsvelli Geysi sunnudaginn 8.sept 2013

Félagsmönnum gefst kostur að bjóða í mótið maka eða félaga.

Mæting er kl. 11.00 og spilað verður Texas scramble, ræst út á öllum teigum kl: 12.00. Forgjöf reiknuð út frá samanlagðri forgjöf parsins, deilt með 5. Forgjöf getur aldrei orðið hærri en lægri forgjafartala parsins segir til um.

Mótsgjald er kr. 4.000 pr.einstakling, innifalið golf og súpa.

Að leik loknum er verðlaunaafhending og gómsæt gæðasúpa að hætti hússins. Veitt verða verðlaun fyrir 1-3 þriðja sæti.

Mótið er haldið í minningu Stefáns Ó.Guðmundssonar og veittur verður farandbikar fyrir 1.sæti án forgjafar.

Skráning í mótið stendur yfir í síma 580 5216 eða gudrun@rafis.is til kl.16.00 fimmtudag 5.sept. 2013

Vinsamlega skráið nafn, kennitölu, GSM og grunnforgjöf.

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?