Fréttir frá 2013

08 30. 2013

Matvörur hækka mikið á milli ára

vertu a verdiSú matvara sem verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á þann 26. ágúst s.l. hefur hækkað mikið í verði frá sambærilegri könnun sem gerð var í júní 2012. Miklar verðhækkanir eru í öllum vöruflokkum hjá öllum verslunum. Þannig hefur vinsæl matvara eins og Klípa hækkað um 3-13% og roðlaus ýsuflök um 4-27%. 

Verð hefur oftast hækkað hjá Fjarðarkaupum á milli mælinga eða á 28 af 34 vörum sem til voru í báðum mælingum. Krónan hækkaði verð á 26 vörum af 33. Nettó hækkar verðið á 25 titlum af 35, Bónus á 24 af 31 og Nóatún á 22 af 33. Verslanirnar Hagkaup og Samkaup Úrval hafa oftar lækkað verð en hækkað. Verslunin Hagkaup hefur oftast lækkað verð í samanburðinum eða á 20 vörum af 39 og Samkaup Úrval lækkaði og hækkaði verð næstum jafn oft í samanburðinum.

Verðhækkanir á vinsælli matvöru
Nánast allar vörurnar sem bornar eru saman hafa hækkað í verði. Sem dæmi um mikla hækkun má nefna t.d. sítrus ávöxtinn lime sem hækkaði um 91% úr 314 kr./kg. í 599 kr./kg. hjá Nettó, um 84% úr 598 kr./kg. í 1.098 kr./kg. hjá Fjarðarkaupum, um 59% úr 439 kr./kg. í 698 kr./kg. hjá Bónus, um 48% úr 499 kr./kg. í 739 kr./kg. hjá Samkaupum Úrval, um 33% hjá Hagkaupum og um 32% hjá Nóatúni. Af öðrum vörum má nefna t.d. SS skólakaæfu sem hefur hækkað um 14% hjá Nóatúni, um 9% hjá Krónunni, um 7% hjá Bónus, um 6% hjá Nettó, um 3% hjá Fjarðarkaupum og Hagkaupum en lækkaði í verði um 11% hjá Samkaupum Úrval.

Einstöku verðlækkanir
Dæmi um vörur sem hafa lækkað í verði eru t.d. Sun Lolly sem hefur lækkað í verði um 11% hjá Hagkaupum og Nettó, um 7% hjá Bónus og um 6% hjá Krónunni. Einnig má nefna að Merrild kaffi hefur lækkað í verði hjá öllum verslunum um 7% hjá Bónus, 5% hjá Fjarðarkaup, 4% hjá Hagkaupum, 3% hjá Samkaupum Úrval, 2% hjá Krónunni og Nóatúni og um 1% hjá Nettó. Gerber eplasafi hefur einnig lækkað í verði um 16% hjá Krónunni, um 15% hjá Nettó, um 13% hjá Samkaupum Úrval og Hagkaupum og um 8% hjá Nóatúni.
Sjá nánari niðurstöður í töflu.
Þær verðbreytingar sem hér eru birtar miða við breytingar á verði verslana milli verðkannana verðlagseftirlits ASÍ þann 5.6.12 og 26.8.13 Rétt er að árétta að mæld eru þau verð sem eru í gildi á hverjum tíma í verslunni og geta tilboðsverð haft áhrif á verðbreytingar einstakra vara.
Verðbreytingar eru skoðaðar í eftirtöldum verslunum; Bónus, Krónunni, Nettó, Fjarðarkaupum, Samkaupum Úrval, Hagkaupum og Nóatúni.
Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu.

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?