Fréttir frá 2013

07 5. 2013

Frímann afsláttur til félagsmanna

Frímann afslátturVið viljum vekja athygli á því að nú hefur fyrirtækjum fjölgað sem gefa félagsmönnum RSÍ afslátt af vörum og þjónustu. Fyrir áhugasama þá getið þið kynnt ykkur hvaða fyrirtæki þetta eru með því að smella hér.

Þegar félagsmenn ætla að nýta afsláttinn þá þarf að biðja um "Frímann afslátt" og nauðsynlegt er að framvísa félagsskírteini eða staðfesta félagsaðild með einhverjum öðrum hætti. Þau fyrirtæki sem bjóða upp á afslátt ættu öll að vera með merki frá okkur sem má sjá hér að ofan (fréttamyndin, smellið á hana til að sjá í fullri stærð). Félagsmenn sjá sama merki aftan á félagsskírteinunum.

Ef sú staða kemur upp að viðkomandi söluaðili kannast ekki við afsláttinn þá má senda ábendingu með því að senda póst á rsi@rafis.is

Hvetjum við félagsmenn til þess að nýta sér alla þá afslætti sem þeir mögulega geta!

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?