×

Villa

[sigplus] Critical error: Image gallery folder test2 is expected to be a path relative to the image base folder specified in the back-end.

Fréttir frá 2013

07 3. 2013

Atvinnuleitendur í júní 2013

[sigplus] Critical error: Image gallery folder test2 is expected to be a path relative to the image base folder specified in the back-end.

vinnumalastofnun Fjöldi félagsmanna RSÍ sem eru í atvinnuleit eru 74 talsins. Atvinnuleysi hefur dregist saman á undanförnum árum og fyrir því geta verið nokkrar ástæður. Ein þeirra er að verkefnum hefur fjölgað í rafiðngreinum hér á landi, nokkur fjöldi íslenskra rafverktakafyrirtækja hafa sótt fleiri verkefni erlendis til viðbótar

við þau sem eru innanlands. Þó nokkur fjöldi félagsmanna RSÍ hafa flutt af landi brott og enn fleiri eru ráðnir til starfa erlendis og ferðast á milli landa til að sækja vinnu. Flestir þeirra hafa sótt vinnu til Noregs enda er staðan á vinnumarkaði í Noregi nokkuð góð í dag.

Hér má sjá töflu yfir atvinnleitendur eins og staðan er í dag.

 

Félag  Júní 2013
FTR  Félag tæknifólks í rafiðnaði  24
RFN  Rafiðnaðarfélag Norðurlands 0
FÍR  Félag íslenskra rafvirkja 24
FRV  Félag rafeindavirkja 11
FRS  Félag rafiðnaðarmanna á Suðurlandi  1
RFS  Rafiðnaðarfélag Suðurnesja 0
FÍS  Félag íslenskra símamanna 13
FSK  Félag sýningarstjóra við kvikmyndahús  1
Samtals: 74

 

Á meðfylgjandi línuriti má jafnframt sjá hvernig fjöldi atvinnuleitenda hefur þróast frá ágústmánuði 2009 til dagsins í dag. Hlutfallstala (rauð lína) sýnir hlutfall atvinnuleitenda af heildar félagsmannafjölda RSÍ á sama tíma. Þar kemur fram að í atvinnuleit í ágúst 2009 voru 5,2% rafiðnaðarmanna en í dag eru þeir 1,5% félagsmanna. Rétt er að hafa í huga ástæður þessarar lækkunar eins og greint var frá hér að ofan.

Fjöldi félagsmanna RSÍ í atvinnuleit

 

 

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?