[sigplus] Critical error: Image gallery folder test2 is expected to be a path relative to the image base folder specified in the back-end.
Þann 26. júní síðastliðinn var farin ferð (H)-eldri félaga en að þessu sinni tóku ríflega 130 félagar þátt í ferðinni með mökum. Farið var upp í Borgarfjörð þar sem Hvanneyri var sótt heim en þar var Hvanneyrarkirkja skoðuð. Hvanneyrarkirkja er friðuð kirkja í eigu Landbúnaðarháskóla Íslands og var byggð árið 1905. Gamla kirkjan sem þar stóð áður var byggð árið 1893 en sú fauk í vondu veðri árið 1902. Því næst var véla- og ullarsafn skoðað á Hvanneyri en þar er að finna elstu dráttarvélar landsins, þær fyrstu sem fluttar voru til Íslands og hafa verið gerðar upp. Virkilega vel var tekið á móti okkur á Hvanneyri og sendum við þakkir fyrir.
Að skoðunarferð lokinni var ferðinni heitið í Borgarnes þar sem boðið var upp á kaffi og kleinur á Hótel Borgarnesi. Þar gafst jafnframt færi á að ræða málin en formaður Rafiðnaðarsambands Íslands ávarpaði hópinn. Áhugasamir geta skoðað myndir úr ferðinni með því að smella hér.