Fréttir frá 2013

06 25. 2013

Vörukarfan hækkar

 

asi stor

Vörukarfan hefur hækkað meira hjá lágvöruverðsverslunum en öðrum verslunum

Vörukarfa ASÍ hefur hækkað um allt að 4,9% frá því í janúar (viku 5) og nú í júní (viku 24). Á tímabilinu janúar til maí var verðbólgan hins vegar aðeins tæp 2% (verðbólgumæling fyrir júní er ekki komin). Það sem af er árinu hefur vörukarfan hækkað meira hjá lágvöruverðsverslunum en öðrum verslunum, mest hjá Nettó, Bónus og Iceland. Vörukarfan hefur lækkað lítilega hjá 5 verslunum af 15, mesta lækkunin var hjá Hagkaupum sem lækkaði verðið í nánast öllum vöruflokkum.

Verð á vörukörfu ASÍ hefur hækkað mest hjá Nettó um (4,9%), Bónus og Iceland um (4,2%), hjá Víði um (1,9%), Krónunni og Kjarval um (1,6%), hjá Samkaupum–Úrvali um (1,5%), Tíu–ellefu um (1,2%), Nóatúni um (0,4%) og hjá Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga um (0,3%). Vörukarfan lækkar mest hjá Hagkaupum um (2,3%), Kaupfélagi Steingrímsfjarðar um (1,1%), Kaskó um (0,6%) og hjá Samkaupum – Strax og Kaupfélagi Skagfirðinga um (0,1%).

info 1 








 




Töluverðar verðhækkanir í öllum vöruflokkum, nema drykkjarvörum

Í töflunni hér að neðan má sjá verðbreytingar í einstaka vöruflokkum, töluverðar verðbreytingar eru í þeim öllum. Sem dæmi um lækkun má nefna að drykkjarvörur hafa lækkað hjá 13 verslunum af 15, mest hjá Víði um (9,1%) og hjá Hagkaupum um (8,7%). Vöruflokkurinn brauð og kornvörur hefur hækkað hjá 11 verslunum af 15, mest hjá Víði um (7,8%) og hjá Samkaupum–Strax um (3,7%).

Hagkaup er eina verslunin sem hefur lækkað verð í nánast öllum vöruflokkum nema  kjötvörum. En kjötvörur hafa hækkað hjá 13 verslunum af 15 en mesta hækkunin er hjá Nettó (26,1%), Kaskó (10,5%) og Bónus (8,8%). Kjötvörur hafa hins vegar lækkað hjá Kaupfélagi Skagfirðinga (5,4%), Samkaupum-Strax (2,8%) og Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga (1,1%).

info 2 


 

 








 

Verðlagseftirlitið mælir breytingar á verði vörukörfu sem getur endurspeglað almenn innkaup meðalheimilis. Vörukarfa ASÍ inniheldur allar almennar mat- og drykkjarvörur, t.d. brauðmeti, morgunkorn, pasta, kjöt, fisk, grænmeti, ávexti, pakkavörur, kaffi, gos, safa, auk hreinlætis- og snyrtivara. Við samsetningu vörukörfunnar voru hafðar til hliðsjónar vogir Hagstofunnar sem notaðar eru til útreiknings á vísitölu neysluverðs. Vogirnar segja til um hversu stór hluti tilteknir vöruflokkar eru af neyslukörfu meðalheimilis.

Verðbreytingar eru skoðaðar í eftirfarandi verslunum: Í lágvöruverðsverslunum Bónus, Krónunni, Nettó og Iceland; í almennu matvöruverslununum Hagkaupum, Nóatúni og Samkaupum - Úrval, Tíu-ellefu, Samkaupum - Strax og Víði; í verslunum staðsettum á landsbyggðinni Kjarval, Kaskó, Kaupfélagi Skagfirðinga, Kaupfélagi Steingrímsfjarðar og Kaupfélagi Vestur Húnvetninga.

Þess ber að geta að hér eru einungis birtar upplýsingar um verðbreytingar í verslanakeðjunum  milli verðmælinga. Ekki er því um beinan verðsamanburð að ræða  þ.e.a.s. hvar ódýrustu vörukörfuna var að finna. Einnig er rétt að athuga að skoðuð eru þau verð sem eru í gildi í verslununum á hverjum tíma og geta tilboð á einstaka vöruliðum því haft áhrif á niðurstöðurnar.

Óheimilt er að vitna í niðurstöðurnar í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?