Fréttir frá 2013

06 13. 2013

Sumarnámskeið fyrir börn og unglinga

asi stor Í yfirliti sem verðlagseftirlit ASÍ tók saman um sumarnámskeið barna kemur fram að mikill verðmunur er á milli þeirra námskeiða sem í boði eru. Sem dæmi um mismunandi námskeið má nefna t.d. knattspyrnu-, fimleika-, golf- og leikjanámskeið.

Á flestum barnaheimilum þurfa foreldrar að skipuleggja frítíma barnanna í nokkrar vikur á sumrin svo þeir geti sinnt vinnu á meðan skólar landsins eru lokaðir og foreldrarnir ekki komnir í frí. Það getur verið umtalsverður kostnaður að koma börnum fyrir á hinum ýmsu námskeiðum, þrátt fyrir að ódýrasti kosturinn sé valinn.

Sem dæmi þarf fjölskylda á höfuðborgarsvæðinu með 10 ára barn sem fer í þrjár vikur á námskeið hálfan daginn og í tvær vikur allan daginn að greiða 41.300 kr. miðað við valið hér að neðan, og er það fyrir utan tíma sem greiða þarf fyrir t.d. gæslu, hressingu og hádegismat.

Félag Tegund námskeiðs Aldur Fjöldi daga Tímar á dag Verð 2013
Útilífsskóli skáta Námskeið m/útilegu 8-12 ára 10 7 18.900 kr.
Siglingakl. Siglunes Siglinganámskeið 9-12 ára 5 3   5.900 kr.
Knattspyrnuf. Þróttur Knattspyrnuskóli 6-13 ára 5 3   5.000 kr.
Grunnskólar RVK Tækni LEGO 6-13 ára 5 3 11.500 kr.

 


 

 

 

Fjölskylda á höfuðborgarsvæðinu með 8 ára barn sem fer á tvö 10 daga námskeið hálfan daginn og svo í tvær vikur allan daginn þarf að greiða 54.000 kr. miðað við valið hér að neðan, en það er fyrir utan tíma sem greiða þarf fyrir t.d. gæslu, hressingu og hádegismat.

 

Félag Tegund námskeiðs Aldur Fjöldi daga Tímar á dag Verð 2013
Reiðskólinn Faxaból Reiðnámskeið 6-15 ára 10 3 25.000 kr.
Glímufélagið Ármann Fimleikaskólinn 6-11 ára 5 7   9.000 kr.
Glímufélagið Ármann Fjölgreinaskólinn 6-11 ára 10 3   8.000 kr.
Skátafélagið Kópar Útilífsnámskeið 8-12 ára 5 7 12.000 kr.






Þessi kostnaður getur svo margfaldast ef mörg börn eru í fjölskyldunni og ef börnin/barnið er í lengri tíma yfir sumarið í skipulagðri dagskrá. Hér getur því verið um talsverðar upphæðir að ræða sem reynst geta mörgum fjölskyldum þungur baggi.

Sem dæmi um önnur námskeið sem skoðuð voru má nefna að Boot camp námskeið í 5 daga 3 klst. á dag kostar 12.500 kr., 5 daga heilsdagsnámskeið hjá KFUM og KFUK – Reykjanesbæ kostar 8.700 kr. og 5 daga Golfnámskeið 3 klst. á dag hjá Pro Golf og Golfklúbbi Reykjavíkur kostar 15.000 kr.

Sjá nánar töflu yfir námskeið

Skoðuð voru verð á námskeiðum íþróttafélaga, á vegum íþrótta- og tómstundarráða og –nefnda, sveitarfélaga, skátafélaga og frjálsra félagasamtaka. Námskeiðunum í könnuninni er skipt í fjölda námskeiðsdaga og klukkustunda á dag. Víða er boðin gæsla á morgnana áður en námskeiðin hefjast, í hádeginu og eftir að dagskrá námskeiðanna lýkur á daginn. Misjafnt er hvort greiða þarf aukalega fyrir þessa gæslu eða hvort hún er innifalin í námskeiðsgjaldinu, sama er að segja um hádegisverð og hressingu, en sjaldnast er matur innifalinn, en oft er hægt að kaupa heitan mat gegn vægu gjaldi. Það gjald sem gefið er upp í könnuninni er ávallt miðað við eitt stakt námskeið þannig að ekki er tekið tillit til afsláttarverðs t.d. iðkendaafsláttar eða systkinaafsláttar. Við samanburð á verði námskeiða er því nauðsynlegt að hafa þetta í huga.

Auk þess ber að athuga að hér er aðeins um verðsamanburð að ræða og sú þjónusta eða dagskrá sem í boði er á námskeiðunum er ekki metin. Úrvalið af sumarnámskeiðum fyrir börn og unglinga er mjög mikið og þessi könnun nær aðeins yfir lítinn hluta þeirra.

 

 

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?