Fréttir frá 2013

04 5. 2013

Allt að 86% verðmunur á skiptingu, umfelgun og jafnvægisstillingu

asi storEftir 15. apríl er ólöglegt að aka á nagladekkjum og því margir sem þurfa að skipta um dekk á bílum sínum næstu daga. Verðlagseftirlit ASÍ
gerði verðkönnun á skiptingu, umfelgun og jafnvægisstillingu hjá 22 hjólbarðaverkstæðum víðsvegar um landið sl. miðvikudag.


Mestur verðmunur í könnuninni var á þjónustu við dekkjaskipti á jeppa með 18´´ stálfelgum (265/60R18) sem var ódýrust á 6.982 kr. hjá Bifreiðaverkstæði S.B á Ísafirði en dýrust á 12.985 kr. hjá Brimborg – Max 1, verðmunurinn var 6.003 kr. eða 86%. Fyrir álfelgu af sömu stærð er þjónustan ódýrust hjá Hjólbarða og smurþjónustunni Klöpp á 6.900 kr., en dýrust á 11.860 kr. hjá Brimborg – Max 1, verðmunurinn var 4.960 kr. eða 72%.
Minnstur verðmunur í könnuninni var á þjónustu við dekkjaskipti undir smábíl og meðalbíl á 14, 15 og 16´´ stálfelgu (175/65R14, 195/65R15 og 205/55R16), sem var ódýrust á 5.390 kr. hjá Nýbarða, en dýrust á 7.360 kr. hjá Öskju, verðmunurinn var 1.970 kr. eða 37%. Fyrir álfelgu af sömu stærð er þjónustan ódýrust á 5.490 kr. hjá VDO Borgardekk en dýrust á 7.939 hjá Brimborg – Max 1, verðmunurinn var 2.449 kr. eða 45%.
Skipting, umfelgun og jafnvægisstilling fyrir jeppling (t.d. Toyota Rav) á 16´´ álfelgum (225/70R16) var ódýrust á 5.900 kr. hjá Nicolai en dýrust á 9.889 kr. hjá Brimborg – Max 1, verðmunurinn var 3.989 kr. eða 68%. Fyrir bíl með stálfelgu af sömu stærð var þjónustan ódýrust á 5.900 kr. hjá Nicolai en dýrust á 9.000 kr. hjá VIP dekk, verðmunurinn var 3.100 eða 53%. Sjá nánar niðurstöður í töflu.smellið hér
Dekkjahöllin, Hjólbarðaverkstæði Kaldársels, Bón og púst, Bílaáttan, Kvikkfix, Pústþjónusta BJB, Hjólbarðaverkstæði Ísafjarðar, Nesdekk, Gúmmívinnslan og Toyota Egilsstöðum gerðu verðlagseftirlitinu ókleift að framkvæma verðkönnun.
Kannað var verð á þjónustu við dekkjaskiptingu, umfelgun og jafnvægisstillingu á álfelgum og stálfelgum af stærðum 14,15,16 og 18´´ á 22 hjólbarðaverkstæðum í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ, Ísafirði, Egilsstöðum og Selfossi. Verð í könnuninni eru án afsláttar en mörg þeirra bjóða ýmsa afsætti t.d. FÍB, eldri borgara- og staðgreiðsluafslátt. Viðskiptavinir eru hvattir til að spyrja um afslátt.
Hér er aðeins um beinan verðsamanburð á þjónustu að ræða en ekki var lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?