Fréttir frá 2013

01 7. 2013

Vinnustaðaheimsóknir

Logo RSÍ 2Á nýju ári er stefnan sett á fleiri vinnustaðaheimsóknir en samhliða fundarferð um landið í október og nóvember voru þó nokkur fyrirtæki heimsótt. Markmiðið er að hitta okkar félagsmenn í léttu spjalli um allt á milli himins og jarðar. Við höfum áhuga á að halda þessu áfram og heimsækja fyrirtæki þar sem félagsmenn óska eftir heimsókn.

Til þess að óska eftir heimsókn frá formanni og starfsmanni RSÍ þá hvetjum við félagsmenn til þess að senda tölvupóst á rsi@rafis.is með fyrirsögninni "Vinnustaðaheimsókn". Við munum í framhaldinu gera hvað við getum til að finna lausan tíma í sameiningu við félagsmenn og yfirmenn vinnustaðarins. 

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?