Fréttir frá 2012

10 2. 2012

Skrifstofustarf

umslag
Rafiðnaðarsamband Íslands, MATVÍS og Félag bókagerðarmanna auglýsa eftir starfsmanni á skrifstofu félaganna. Um fjölbreytt og áhugavert starf er að ræða. Vinnutími frá 8 – 16, æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst.

Starfssvið

  • Símsvörun og móttaka

  • Upplýsingagjöf vegna m.a. kjarasamninga

  • Umsjón með útleigu orlofshúsa

  • Skjalavarsla og bréfaskriftir

  • Skráning iðgjaldaskýrslna

  • Ýmis tilfallandi skrifstofustörf

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegu starfi æskileg

  • Góð tölvukunnátta

  • Góð íslenskukunnátta skilyrði

  • Góð enskukunnátta og kunnátta í einu Norðurlandamáli æskileg

  • Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Góðir samskiptahæfileikar, þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum

Umsjón með starfinu hafa Auður Bjarnadóttir (audur.bjarnadottir@capacent.is) og Silja Jóhannesdóttir (silja.johannesdottir@capacent.is). Umsóknarfrestur er til og með 11. október nk. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Capacent Ráðninga.

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?