Fréttir frá 2012

09 27. 2012

Ályktun miðstjórnar ASÍ

ASI 500xMiðstjórn ASÍ sendi í gær frá sér eftirfarandi ályktun en mikilvægt er í þessu ljósi að tryggja að þær hækkanir á launatöxtum sem samið var um í kjarasamningum þann 5. maí 2011 skili sér til allra hópa þjóðfélagsins. 

 

Ályktun miðstjórnar ASÍ um fjárlagafrumvarpið
Miðstjórn ASÍ krefst þess að ríkisstjórn og Alþingi tryggi að kjör þeirra tekjulægstu dragist ekki aftur úr kjörum annarra hópa.

Samkvæmt fjárlagafrumvarpi næsta árs er gert ráð fyrir að þeir sem hafa verið án atvinnu lengur en fjögur ár missi rétt til atvinnuleysisbóta og þurfi því að leita eftir fjárhagsaðstoð frá sínu sveitarfélagi, að atvinnuleysisbætur hækki einungis um rúmar 5.400 kr. þegar almennir launataxtar hækka um 11.000 kr. Þá er hvorki gert ráð fyrir að bætur almannatrygginga hækki til samræmis við hækkun almennra launataxta né heldur er gert ráð fyrir fjármagni til að draga verulega úr tekjutengingum milli lífeyrissjóða og almannatrygginga.

Miðstjórn ASÍ minnir á að ríkisstjórnin lofaði við gerð síðustu kjarasamninga að beita sér fyrir því að bætur almannatrygginga og atvinnuleysisbætur hækkuðu til samræmis við almennar taxtahækkanir. Miðstjórnin skorar á ríkisstjórn og Alþingi að standa við gefin loforð.

Ályktunina má einnig finna hér.

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?