Fréttir frá 2012

06 14. 2012

Fjölskylduhátíð RSÍ 2012

SkogarnesNú styttist óðum í Fjölskylduhátíð RSÍ sem verður haldin á Skógarnesi við Apavatn helgina 22. - 24. júní næstkomandi. Hátíðin hefur verið gríðarlega vinsæl á meðal félagsmanna og fjölskyldna og því er nauðsynlegt að þeir félagsmenn sem ætla að sækja hátíðina hafi félagsskírteini meðferðis til þess að sýna við komu á svæðið, ef félagsmenn hafa gesti með sér þá er nauðsynlegt að staðfesta það við komu en félagsmaður þarf að vera mættur á undan gesti sínum. Við biðjum alla gesti hátíðarinnar að kynna sér þær reglur sem eru í gildi á svæðinu. Dagskrá hátíðarinnar er að finna hér.

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?