Fréttir frá 2011

03 6. 2011

Umræðan

Þegar við talsmenn almenna vinnumarkarins hlustum á ræður stjórnmálamanna áttar maður sig fljótt á því að þar á ferð eru nær eingöngu einstaklingar sem hafa verið opinberir starfsmenn, fólk sem þekkir ekki almenna vinnumarkaðinn og hvernig kaupin ganga fyrir sig á eyrinni.

 

 

T.d. má velta því fyrir sér hvar stjórnendur efnahagskerfis 300 þús. manna þjóðar séu staddir í veruleikanum þegar þeir ætluðu sér samtímis að byggja upp eitt stærsta tónleikahús í Evrópu, viðskiptamiðstöð og nýja miðborgarkjarna, nýjan landspítala, færa miðstöð innanlandsflugs og byggja nýjan flugvöll, leggja 10 Mia jarðgöng til þess að tengja saman borgarhluta í Reykjavík, byggja 2 ný álver og stækka eitt um helming, reisa kísilverksmiðjur og gagnaver, samfara því að byggja um leið raforkuvirkjanir, sem voru samtals allt að tvöfalt stærri að orkugetu en Kárahnjúkar til þess að sjá um orkuþörf álveranna. Hvaðan áttu að koma fjármunir til þessara framkvæmda? Vita þessir menn ekki hver árleg þjóðarframleiðsla er og hversu miklum hluta er hægt að verja til framkvæmda.

 

Málum er oftast skipt niður í box og umræða grundvölluð á heildarsýn fer sjaldan fram. Eins og ég hef komið að þá er rætt um að byggja margskonar orkufrek fyrirtæki, leggja sæstreng yfir til Evrópu og að flytja út orku. Þannig muni skapast umtalsverðar skatttekjur sem muni hjálpa fámennri þjóð til þess að standa undir dýru velferðarsamfélagi.

 

Stjórnmálamenn eru síðan spurðir hvar eigi að framleiða alla þessa orku þá er svarið að það verði rætt í orkuboxinu. Þegar við mætum í þá umræðu þá eru margskonar fyrirvarar í gangi, skipulagslög, umhverfisvernd, samskiptavandamál við margskonar nefndir og fleira. Eða á mannamáli, það stendur ekki til að framleiða alla þá orku sem til þarf svo hægt sé að standa við þau fyrirheit sem gefin eru í framkvæmdaboxinu.

 

T.d er einsog staðan er í dag ekki hægt að byggja Helguvíkurálverið öðruvísi en að virkja í neðri hluta Þjórsár. Það verður ekki til það umframmagn af orku sem þarf til þess að útflutningur borgi sig nema að virkja umtalsvert meir en þegar hefur gert og endurbyggja þarf rafflutningskerfið og tengja Kárahnjúka saman við Þjórsársvæðið með línu yfir Sprengisand.

 

Ég hef oft bent á umræðuhefð hér á landi einkennist af kappræðu, eða ofbeldi eins og háskólaprófessorarnir Páll Skúlason heimspekingur og Sigurður Líndal lögspekingur hafa ítrekað bent á. Hún einkennist á upphrópunum og órökstuddum klisjum sem menn hendi sín á milli. Kappræða sem hefur það markmið eitt að snúa út úr því sem síðasti ræðumaður sagði.

 

Í stað þess að fjalla um málefnið í góðri heildarsýn, er andstæðingum gerðar upp skoðanir og andsvör byggð á þeim grunni. Ég verð t.d. oft fyrir því að því er haldið fram að ég sé með gífuryrði, þegar ég bendi á einfaldar staðreyndir eins og t.d. að vextir séu háir hér á landi vegna hins sveiflukennda örgjaldmiðils sem við höfum, það sé gjaldmiðillinn sem valdi því að kaupmáttur falli ekki slakir kjarasamningar, eða þegar ég bendi á göt í umræðu um orkuframkvæmdir. Það koma engin gagnrök einungis persónulegar ásakanir og dylgjur.

 

Undanfarin misseri hafa forsvarsmenn tæknifyrirtækja sagt að það sé gjaldmiðillinn sem valdi því að fyrirtækin þeirra geti ekki vaxið hér á landi og þau verði að flytja héðan, þetta hefur verið endurtekið undanfarna daga. Forsvarsmenn litlu sprotafyrirtækjanna segja að þeir geti ekki byggt upp fyrirtæki hér á landi vegna þess að hér sé engin grundvöllur fyrir hlutabréfamarkað á meðan við höfum krónuna.

 

Sé litið til umræðunnar þá hefur það opinberast berlega fyrir okkur hversu löskuð umræðan er hér landi. Ekki bara hjá stjórnmálamönnum heldur hafa þar verið áberandi einstaklingar sem hafa verið ósparir á yfirlýsingar og sleggjudóma. Karl Sigurbjörnsson fyrrv. biskup sagði einu sinni "Níð og mannorðsmorð eru söluvara og ósjaldan stundað af þeim sem hæst hrópa og ákafast veifa fánum siðavendninnar. Áður hefðu Íslendingar verið þekktir fyrir orðheldni og heiðarleika. Menn stóðu við orð sín, handsöluðu skuldbindingar og stóðu við þær. Nú er sem mörgum finnist munnlegir samningar og fyrirheit lítils virði, flestallt sé afstætt. Stjórnmálin hafa lengi snúist um ímyndir og slagorð, sýndarmennsku og gylliboð."

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?