Fréttir frá 2011

02 11. 2011

Staðan í kjaramálum 11. feb.

Undanfarna tvo daga hefur verið unnið að því að losa um þá fjötra sem SA/LÍÚ voru búin að setja á  viðræður vegna endurnýjunar kjarasamninga.

 Fyrir liggur fyrir vinnuskjal fram samninganefndum SA og ASÍ þar sem reiknað er með menn vinna það sem af er þessa mánaðar að setja upp útlínur 3ja ára samnings sem rennur út 31. des. 2013.

 

Samningstímabilið hefst 1. marz 2011 með aðlögunartímabili sem rennur út 1. júní 2011. 1. jan. 2012 og 1. jan. 2013 komi launahækkanir. Inn í samningnum verði verðtryggingar og stefnumið í efnahags- og gengismálum. Samningstímabilið hefjist með launahækkun 1. marz.

 

Hafi aðilar, það er stjórnvöld, sveitarfélög, SA og samtök launamanna náð samkomulagi fyrir 1. júní, taka umsamdar launahækkanir að fullu gildi og breytingar þá framkvæmdar taxtakerfum. Ekki er búið að semja um hækkanir og ber nokkuð á milli aðila hvað varðar, en reiknað er með krónutöluhækkunum á lægstu taxta, en að öðru leiti prósentuhækkunum.

 

Ef ekki næst heildarsamkomulag fyrir júní er fellur samningurinn úr gildi og er uppsagnarfrestur samningsins verður er 3 mán. Búið er að ræða ýmis tækniatriði, en eins og vanir samningamenn þekkja, þá getur sambland krónutöluhækkana og prósentuhækkana í mörgum tilfellum orðið mjög flókið í taxtakerfum.

 

Miklu máli skiptir í þessu samhengi öllu hvernig umsamin atriði tengjast efnahagsstjórn og verðtryggingu samningsins og uppbyggingu atvinnulífs. Ná þarf sátt um hlutlæg markmið og viðmiðanir til þess að verja kaupmátt í svona löngum samning. Í marz verður lögð megin áhersla á að ná sáttum um launahækkanir og mál tengd þeim þætti. Í apríl og maí verður síðan lögð áhersla á sameiginleg mál hvað varðar stjórnvöld.

 

Með þessu er stefnt að því að tryggja öllum launahækkanir, ekki síst þeim sem minnst mega sín og eru í hvað verstri stöðu á vinnumarkaði. En eins og komið hefur fram þá hafa tvö stéttarfélög klofið sig frá þessari vinnu og vilja semja um launahækkanir hjá stéttum sem vinna í útflutningsfyrirtækjum, en láta að aðrar stéttir liggja óbættar hjá eins og komið hefur fram í fjölmiðlum undanfarna daga.

 

Þetta hefur þær afleiðingar að laun verða tengd afkomu fyrirtækja og sem hefði haft þær afleiðingar að laun hjá útflutningsfyrirtækjum hefðu lækkað um 30% á árunum 2005 - 2008.

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?