Fréttir frá 2010

11 12. 2010

Ályktun um efnahagsmál

Á trúnaðarmannaráðstefnu Rafiðnaðarsambands Íslands 11. - 12. nóv. 2010 var samþykkt eftirfarandi ályktun um efnahagsmál.

 

 

Þeir stjórnmálamenn sem voru við völd þegar gengi krónunnar hrundi og Seðlabankinn varð gjaldþrota, fara nú mikinn og telja lægstu laun til skammar fyrir verkalýðshreyfinguna og reyna að koma sökum á hana. Kaupmáttur hefur ekki hrapað vegna lakra kjarasamninga, heldur vegna rangrar efnahagsstjórnar stjórnmálamanna. Þeir hafa ítrekað nýtt krónuna til þess að leiðrétta eigin efnahagsmistök með skelfilegum afleiðingum fyrir almenning og stórkostlegum eignatilfærslum til hinna efnameiri.

 

Samtök launamanna hafa á undanförnum áratugum ítrekað þurft að grípa til varna vegna skerðingar stjórnvalda á bótum almannatrygginga, þrátt fyrir það halda stjórnmálamenn því fram að þessar bætur séu allt of lágar og bera sakir á aðra. Sömu stjórnmálamenn og sviku umsamda hækkun persónuafsláttar um síðustu áramót, telja nú að verkalýðshreyfingin hafi ekki staðið sig í að verja kjör hinna lægst launuðu.

 

Þjóðmálaumræða einkennist þannig af lýðskrumi, upphrópunum, sleggjudómum og falsi. Umræðan á Alþingi einkennist af aulabröndurum, útúrsnúningum og átakastjórnmálum. Samtök launamanna gengu fram fyrir skjöldu við Hrun og lýstu yfir vilja til þess að ganga með stjórnvöldum og öllum aðilum vinnumarkaðsins til lausnar á þeim vanda sem við blasti. Þrátt fyrir undirritaða samninga hafa stjórnvöld sniðgengið samtök launamanna. Alltaf og alls staðar í öllum málum fela stjórnmálamenn getuleysi sitt bakvið skrumið. Yfirlýsingar stjórnvalda um endurreisn atvinnulífsins í Stöðugleikasáttmála voru sýndarmennska og virðist aldrei hafa staðið til að standa við þann samning. Það skortir samráð innan ríkisstjórnarinnar, milli ríkisstjórnarinnar og stjórnarandstöðunnar og milli ríkisstjórnarinnar og aðila vinnumarkaðarins.

 

Kröfur um launahækkanir eru háværar ásamt því að tekið verði með festu á efnahagstjórn og gjaldmiðilsmálum til framtíðar. Verði það ekki gert mun það taka Ísland langan tíma að vinna sig tilbaka upp úr aðsteðjandi vanda og Ísland stefnir í að verða láglaunasvæði til óþarflega langs tíma. Félagsmenn stéttarfélaganna gera kröfur um að grípið verði til harkalegra aðgerða til þess að reka stjórnmálamenn upp úr hjólförum doðans til raunsærra aðgerða. Þjóðarsátt verður ekki gerð nema með aðkomu launafólks, ekki með innistæðulausum yfirlýsingum og skrumskældum veruleika.

 

Á þessum forsendum telur Trúnaðarmannaráðstefna Rafiðnaðarsambandsins 2010 m.a. óhjákvæmilegt að krefjast endurskoðunar á lögum um vinnustöðvanir og fá þar inn sambærileg ákvæði og tíðkast í nágrannalöndum okkar um pólitíska mótstöðu launamanna, ef stjórnvöld sína andvaraleysi í veigamiklum málum. Verkalýðshreyfingin hefur á undaförnum árum einbeitt sér að fagpólitík án stjórnmálatengsla, en hefur ekki náð ásættanlegum árangri í deilum í mikilvægum málaflokkum, það kallar á breytta vinnuhætti.

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?