Atvinnulausir rafiðnaðarmenn í nóvember voru 205.
Langflestir á höfuðborgarsvæðinu, utan þess skiptist það svo Suðurnes 2, Suðurland 2, Austurland 1, Norðurland 6 og Vesturland 1. Þessi staða er vel þekkt, enda hefur það ætíð verið þannig að ef ekki er vinnu að hafa út á landi þá hafa menn flutt á höfuðborgarsvæðið.
Þetta er nánast óbreytt staða frá síðustu mánuðum, eða tæp 4%. Í október fyrir ári var nánast ekkert atvinnuleysi í rafiðnað og hafði ekki verið um árabil, þrátt fyrir að erlendir rafiðnaðarmenn hefðu verið nálægt 400 hér á landi þegar flest var. Í nóvember 2008 eru svo skyndilega komnir 62 á atvinnuleysiskrá, það jókst síðan jafnt og þétt upp 340 í marz og var síðan stöðugt í þeirri tölu þar til í júni þá fór að fækka á skránni minnka og fór niður í liðlega 200 og hefur staðið þar síðan.
Ástæða þess var einna helst að rafiðnaðarmenn fóru erlendis eða í önnur störf. Skráðum félagsmönnum hefur fækkaði um 5% frá því fyrir ári síðan. Nokkuð var um ráðningar þegar leið á sumarið.
Eins og staðan er í nú má reikna með að atvinnulausum rafiðnaðarmönum fjölgi töluvert í byrjun næsta árs, sé litið til verkefna stöðu fyrirtækja í rafiðnaði
Símsmiðir 4
Nemar 7
Símamenn 12
Rafeindavirkjar 36
Rafvirkjar 63
Tæknifólk 83
Samtals 205
23 af skráðum atvinnulausum eru í hlutastarfi.