Fréttir frá 2009

11 2. 2009

Launakönnun 2009

Undanfarin ár hefur Capacent gert launakönnun fyrir RSÍ í september. Könnunin fyrir þetta ár var að birtast. Helst kemur á óvart hversu mun betur  vinnumarkaður rafiðnaðarmanna stendur er spáð hafði verið

 

Launakönnun Rafiðnaðarsambands Íslands 2009

 

Capacent var að ljúka fjórðu launakönnun RSÍ. Capacent hefur kannar laun og vinnutíma rafiðnaðarmanna í september. Úrtak nú var 1307 félagsmenn. 763 svöruðu eða 58.4% sem er góð svörun að því okkur er tjáð. 668 karlar og 95 konur, sem samsvarar vel kynjaskiptingu innan sambandsins.

 

 

Menntun og staða á vinnumarkaði

18% félagsmanna er með minni menntun en iðnnám. 67% hafa lokið iðnnámi. 16% hafa lokið háskólanámi.

 

4,3% eru atvinnulausir. 83% eru fastráðnir, 4% lausráðnir, 1,3% eru á uppsagnarfresti og svipaður hópur á reynslutíma. 1,4% er í námi og 5% félagsmanna eru verktakar.

 

88% félagsmanna er í fullu starfi, 6% í hlutastarfi og 6% ekki í föstu starfi.

 

 

Háskólamenntun            9%

Tæknifræðimenntun        7%

Meistaranám.                18%

Iðnnám                         47%

Annað                          18%

 

 

Vinnutími

 

Vinnutími hefur lækkað stöðugt þessi fjögur ár. Var 199 klst. yfir mánuðinn 2006 hjá þeim sem eru í fullu starfi, en er núna 181 klst. og var 185 klst. í fyrra.

 

Yfirvinnutímar voru að meðaltali 22 klst. hjá þeim sem eru í fullu starfi, var 31 klst. í fyrra. Hér er mismunur á lækkun heildartíma og svo skráðri yfirvinnu. Þetta skýrist með því að fastri yfirvinnu í fastlaunasamningum hefur á nokkrum stöðum verið sagt upp.

 

Meðalyfirvinnutími háskólamanna          19 klst.

Meðalyfirvinnutími tæknifræðinga           25 klst.

Meðalyfirvinnut. sveina m. meistarask.   25 klst.

Meðalyfirvinnutími rafvirkja                     25 klst.

Meðalyfirv.t. rafv. utan höfuðborgarsv.     26 klst.

Meðalyfirvinnutími rafeindavirkja             20 klst.

Meðalyfirvinnutími tæknifólks                20 klst.

Meðalyfirvinnutími símafólks                 11 klst.

 

Heildarlaun

 

Meðalheildarlaun rafiðnaðarmanna í september er 438.690 kr. en voru í fyrra 451.207 kr.

Að teknu tilliti til styttri vinnutíma þá eru heildarlaun óbreytt.

 

Meðalheildarlaun rafiðnaðarmanna með sveinspróf eða minna eru 378 þús. kr.

Voru 394 þús. í fyrra og hafa þá lækkað um 4,2%.

Yfirvinna þessa hóps í fyrra var 25,7 klst. að meðaltali á mán. En er núna 14,7 klst.

Að teknu tilliti til vinnutíma þá hafa heildarlaun þessa hóps hækkað um 1,1%.

 

Meðalheildarlaun rafiðnaðarmanna með sveinspróf eða meira eru 467 þús. kr.

Voru 486 þús. kr. og hafa því lækkað um 4%.

Yfirvinna þessa hóps í fyrra var 32,5 klst. að meðaltali á mán. En er núna 22,5 klst.

Að teknu tilliti til vinnutíma þá hafa heildarlaun þessa hóps hækkað um 5,1%.

 

Meðalheildarlaun háskólamanna            511 þús. kr.

Meðalheildarlaun tæknifræðinga            490 þús. kr.

Meðalheildarlaun sveina m. meistarask. 491 þús. kr.

Meðalheildarlaun rafvirkja                      476 þús. kr.

Meðalhl. rafv. utan höfuðborgarsv.          420 þús. kr.

Meðalheildarlaun rafeindavirkja              468 þús. kr.

Meðalheildarlaun tæknifólks                  406 þús. kr.

Meðalheildarlaun símafólks                   365 þús. kr.

 

Meðalheildarmánaðarlaun

sept. 2006        ágúst 2007       sept. 2008        sept. 2009

Háskólamenn     466 þús. kr.       500 þús. kr.       530 þús. kr.       511 þús. kr.

Tæknifræðingar  407 þús. kr.       432 þús. kr.       477 þús. kr.       490 þús. kr.

Rafeindavirkjar    390 þús. kr        474 þús. kr.       474 þús. kr.       468 þús. kr.

Rafvirkjar            429 þús. kr.       436 þús. kr.       492 þús. kr.       476 þús. kr.

Símamenn         313 þús. kr.       344 þús. kr.       374 þús. kr.       365 þús. kr.

Tæknifólk           326 þús. kr.       417 þús. kr.       447 þús. kr.       406 þús. kr.

 

Regluleg laun

 

Meðaldaglaun (regluleg laun) rafiðnaðarmanna eru í september 347.772 kr.

Voru 340.422 kr. í fyrra og hafa því hækkað um 2,2%.

Regluleg laun eru föst laun sem greidd eru fyrir 40 dagvinnutíma, utan bónus, álags eða yfirvinnu.

 

Meðaldaglaun rafiðnaðarmanna, án sveinsprófs eru 310 þús. kr.

Voru í fyrra 296 þús. kr. og hafa því hækkað um 4,7%%

Meðaldaglaun rafiðnaðarmanna án sveinsprófs eru 1.700 kr. á tíman að meðtöldum des. og orlofsuppbót og öðrum föstum greiðslum. Yfirvinnulaun eru að meðaltali 3.000 kr. á tímann.

 

Meðaldaglaun rafiðnaðarmanna með sveinspróf eru 365 þús. kr.

Voru í fyrra 364 þús. kr. og hafa því hækkað um 0,3%.

Meðaldaglaun rafiðnaðarmanna með sveinspróf eru 2.100 kr. á tíman að meðtöldum des. og orlofsuppbót og öðrum föstum greiðslum. Yfirvinnulaun eru að meðaltali 3.650 kr. á tímann.

 

Meðaldaglaun háskólamanna                464 þús. kr.

Meðaldaglaun tæknifræðinga                375 þús. kr.

Meðaldaglaun sveina m. meistarask.     371 þús. kr.

Meðaldaglaun rafeindavirkja                  397 þús. kr.

Meðaldaglaun rafvirkja á höfuðb.sv        344 þús. kr.

Meðaldagl. rafv. utan höfuðborgarsv.      310 þús. kr.

Meðaldaglaun tæknifólks                     348 þús. kr.

Meðaldaglaun símafólks                       337 þús. kr.

 

 

Regluleg laun

sept. 2006        ágúst 2007       sept. 2008        sept. 2009

Háskólamenn                396 þús. kr.       455 þús. kr.       471 þús. kr.       464 þús. kr.

Tæknifræðingar             282 þús. kr.       332 þús. kr.       401 þús. kr.       375 þús. kr.

Án sveinsprófs              258 þús. kr.       299 þús. kr.       364 þús. kr.       310 þús. kr.

Sveinspr. eða meira       291 þús. kr.       341 þús. kr.       364 þús. kr.       365 þús. kr.

Rafeindavirkjar              308 þús. kr.       403 þús. kr.       399 þús. kr.       397 þús. kr.

Rafvirkjar                      285 þús. kr.       303 þús. kr.       321 þús. kr.       344 þús. kr.

Símamenn                    279 þús. kr.       320 þús. kr.       346 þús. kr.       337 þús. kr.

Tæknifólk                     274 þús. kr.       309 þús. kr.       340 þús. kr.       348 þús. kr.

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?