Fréttir frá 2009

05 22. 2009

Fyrsta skerðing lífeyrissjóðs rafiðnaðarmanna

Á ársfundi lífeyrissjóðsins Stafa (sjá hér) var kynnt að niðurstaða ársreikninga gerði það að verkum að skerða þyrfti lífeyri um 6%. Þetta er er fyrsta skerðing í þeim lífeyrissjóðum sem rafiðnaðarmenn hafa staðið að. Fyrst; Lífeyrissjóð rafiðnaðarmanna, sem síðan sameinaðist lífeyrissjóðum matreiðslu og framleiðslumanna í Lífiðn. Sá sjóður sameinaðist svo Samvinnulífeyrissjóðnum í nýjan lífeyrissjóð Stafi. Réttindi rafiðnaðarmanna í þessum lífeyrissjóðum hafa aldrei verið skert, en hafa aftur á móti verið aukin um 47% aukalega á þessum tíma. Flestir aðrir lífeyrissjóðir hafa orðið að skerða réttindi umtalsvert eða liðlega um 20% fyrir nokkrum árum eins og t.d. hjá Lífeyrissjóð Verzlunarmanna. Auk þessa er ávinnsluréttur og makalífeyrir í Stöfum mun betri en hjá flestum öðrum lífeyrissjóðum. 

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?