Fréttir frá 2009

06 7. 2009

Minni húsin í Skógarnesi til sölu

Ákveðið hefur verið að skipta út minni húsunum á orlofssvæði RSÍ í Skógarnesi við Apavatn næsta vetur og eru húsin því til sölu. Um er að ræða 4 hús sem eru liðlega 45 ferm. að stærð.  Ákveðið hefur verið að skipta út minni húsunum á orlofssvæði RSÍ í Skógarnesi við Apavatn næsta vetur og eru húsin því til sölu. Um er að ræða 4 hús sem eru liðlega 45 ferm. að stærð. Í húsunum eru tvö svefnherbergi með svefnrými fyrir 6 manns, snyrting með sturtu og stofa með eldhúskrók. Húsgögn sem í þeim eru fylgja auk heitra potta sem er við þau. Húsin er hægt að skoða í Skógarnesi föstudaga í júní kl. 12.00 ? 15.00. Þau verða tilbúin til flutnings um miðjan september og verður þá að fjarlægja þau strax. Tilboðum á að skila á skrifstofu Rafiðnaðarsambandsins fyrir 30. júní. Áskilin er allur réttur til þess að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna þeim öllum.

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?