Fréttir frá 2008

02 19. 2008

Úrdráttur úr nýjum kjarasamning RSÍ og SART/SA

Um helgina var gengið frá nýjum kjarasamning við SA og SART. Samningurinn er sá umfangsmesti sem þessir ailar hafa gert um áraraðir eða alls 34 blaðsíður. Þar er tekið á mjög mörgum málum sem hafa verið deiluefni á undanförnum árum og ekki náðst samkomulag að takast á við.  Nýr kjarasamningur RSÍ og SART/SA til þriggja ára ·       Lágmarkstaxtar Rafiðnaðarsambandsins á almennum markaði  hækka með nýjum kjarasamning um 27% eða samtals um 49.000 kr.  á samningstímanum. ·       Lágmarkslaun sveina verður 238 þús. kr. og 5 ára sveina 266 þús. kr. ·       Lágmarkstaxtar eru  færðir töluvert nær greiddum launum og tryggt öryggisnet almenna launakerfisins skelli á mikil niðursveifla vinnumarkaðnum. ·       Samið er um nýja lágmarkstaxta eftir 2ja ára nám og 3ja ára nám. Með þessu er verið að takast á við þann vanda sem undirboð fyrirtækja, sem nýtt hafa sér erlenda rafiðnaðarmenn og greitt þein lágmarkstaxta, oftast taxta ófaglærðra. ·       Nýtt ákvæði um 15% álag vegna flokkstjórnar er í samningnum. ·       Rafiðnaðarmenn skulu fá að lágmarki hafa fengið 5.5% launahækkun frá 1 jan. 2007 hafi þeir starfað hjá sama fyrirtæki þann tíma annar 4.5%.   ·       Ákvæðum um ?línuna? á höfuðborgarsvæðinu eru gerð mun skýrari og inn kemur nýtt ákvæði um greiðslu þurfi rafiðnaðarmaður að ferðast á eigin bíl til annars vinnustaðar en verkstæðis í upphafi vinnudags. ·       Nú næst fram gömul krafa um 30 daga orlof, auk þess að ávinnsla verður mun hraðari. ·       Einnig bætast 2 dagar í við orlof vegna veikinda barna. ·       Tími til námskeiðssóknar í vinnutíma er aukin frá 12 tímum í 16 tíma á ári og úr 24 tímum í 40 tíma annað hvert ár. ·       Ákvæði um slysatryggingar eru bætt umtalsvert og geta numið rúmlega 31 millj.kr.         Ákvæði er um að starfsmaður eigi rétt á að fá vitneskju um ástæðu uppsagna ·       Samið er um endurhæfingarsjóð sem markar ný spor í baráttunni við örorkuna. ·       Hækkun persónuafsláttar verður 7 þús. kr. sem samsvarar að raungildi skattleysismarka hækkar um 20 þús. kr. ·       Veruleg hækkun verður á barnabótum og rýmkun á eignatengingu vaxtabóta. ·       Samkomulag við ríkisstjórn um verulegt átak í menntun þeirra sem minnsta menntun hafa. ·       Virkjanasamningur rann út nú um áramótin. Í stað hans var gengið frá saming um stórframkvæmdir   Samningurinn gildir frá 1. feb. 2008 til 30. nóvember 2010. Forsendur samningsins er að kaupmáttur launa haldist eða aukist og að verðbólga fari lækkandi. Í febrúar 2009 verður farið yfir það hvort þessar forsendur hafi staðist. Hafi það gerst þá framlengjast samningarnir til nóvemberloka árið 2010. Hafi það hins vegar ekki gerst þá geta samningsaðilar samið um viðbrögð og þar með framlengingu samninganna eða samningar verða lausir frá og með 1. mars 2009.   Taxtahækkanir launa á samningstímanum Kjarasamningarnir fela m.a. í sér hækkun almennra launataxta um kr. 21.000 við undirskrift,    kr. 17.500 árið 2009 og kr. 10.000 árið 2010. Við það er miðað að nýjar launatöflur taki gildi á hverju ári.   Reiknitala ákvæðisvinnu hækkar um 5,5%  og verður kr. 405.78. Nýverið er lokið endurskoðun taxtans og mun einingafjöldi halda í við launaþróun tímakaups. Reiknitalan hækkar sérstaklega um 2,5% árið 2009 og verður kr. 428.10.  Frá 1. janúar 2010 verður hún kr. 438.81.   Launaþróunartrygging 1.febrúar 2008  kemur inn launaþróunartrygging.  Í henni felst að þeir sem verið hafa í starfi hjá sama atvinnurekanda og hafa ekki fengið að lágmarki 5,5% launahækkun frá 2. janúar 2007 til undirritunar samninga fái það sem á vantar.  Ennfremur er ákvæði fyrir þá sem skipt hafa um starf fram til 1. september 2007.  Þá er hækkunin 4.5%. Á árinu 2009 verði launaþróunartryggingin 3,5% með sömu skilmálum.  Starfsmaður sem hefur skipt um starf á tímabilinu skal fá grunnhækkun án frádráttar nema um annað hafi verið samið við ráðningu. 1. janúar árið 2010 verður almenn launahækkun upp á 2,5% auk fyrrgreindra taxtahækkana.   Desember og orlofsuppbót ·         Á árinu 2008. Desemberuppbót  44.000 - Orlofsuppbót kr. 24.300 ·         Á árinu 2009. Desemberuppbót  45.500 - Orlofsuppbót kr. 25.300 ·         Á árinu 2010. Desemberuppbót  47.000 - Orlofsuppbót kr. 25.400  Desember og orlofsuppbót starfsþjálfunarnema verður sú sama og sveina   Nýmæli og breytingar á kjarasamningum Línan Í dag miðast línan á höfuðborgarsvæðinu við Orkuveitusvæði OR, sem hefur vaxið gríðarlega á undaförnum árum. Í nýjum samning er línan mörkuð við samfellda byggð í Mosfellsveit, Reykjavík utan Kjalarnes, Kópavog, Seltjarnarnes, Garðabæ, Álftanes og Hafnarjörð. Þurfi að fara einn km. út fyrir þetta svæði greiðist sérstaklega fyrir þá ferð og hún er í vinnutíma. Nýmæli er einnig að sé farið fram á við rafiðnaðarmann að hann mæta á eigin bifreið á byggingarstað annan en verkstæði, skal greiða sérstaklega fyrir það þóknun sem svarar til 15% af kílómetra gjaldi, þó aldrei skemur er 8 km. og að hámarki 16 km. á dag.   Lenging orlofs Samkomulag náðist um að breyta ávinnslurétti á orlfosdögum og fjölga þeim. Hér næst ákvæði sem er búið að vera í kröfugerðum rafiðnaðarmanna um langt árabil. Nýju ákvæðin gilda á orlofsárinu frá 1. maí 2008 ·         5 ár í rafiðnaði  - 25 virkir dagar         10,64%  í orlofslaun       Aukning um 1 dag. ·         10 ár í rafiðnaði ? 27 virkir dagar     11.59%  í orlofslaun       Aukning um 1 dag. ·         5 ár hjá sama fyrirt. - 28 virkir d.     12,07%  í orlofslaun       Aukning um 1 dag. ·         10 ár hjá sama fyrirt. ? 29 virkir d.  12,55%  í orlofslaun       Aukning um 1 dag. Breytist 1. maí 2009 í 30 daga      13.04% í orlofslaun.     Aukning um 2 daga.   Veikindi barna Á fyrsta starfsári hjá sama vinnuveitanda skal foreldri heimilt að verja tveimur dögum fyrir  hvern unninn mánuð þangað til réttur verður 12 dagar (aukning frá 10 dögum) á hverju tólf mánaða tímabili til aðhlynningar sjúkum börnum sínum undir 13 ára aldri enda verði annnari umönnun ekki viðkokmið og halda þá dagvinnulaunum sínum svo og vaktarálagi þar sem það á við.   Slysatryggingar launafólks Fullyrða má að þær slysatryggingar sem eru í samningnum séu meðal mikilvægustu nýmæla hans. Nýr kafli um slysatryggingar launafólks tekur gildi frá 1. maí 2008. Um er að ræða tryggingar vegna vinnuslysa eins og þau eru skilgreind í kjarasamningnum.  Þau helstu eru: Veruleg hækkun flestra tryggingafjárhæða. Mikil hækkun verður á örorkubótum.  Þannig hækkar grunnfjárhæð örorkubóta í 11.400.000 kr. En 100% örorka  hækkar  í  31.350.000 kr. Dánarbætur hækka og dánarbætur maka verða 5.000.000 kr. Dánarbætur barna hækka í rúmlega fjórar milljónir  vegna yngstu barnanna en minna fyrir þau sem eldri eru.   Víðtækari tryggingar ·         Vátryggingin nær nú í fyrsta sinn til ungmenna á aldrinum 18-22 ára sem áttu sama lögheimili og hinn látni og voru sannanlega á framfærslu hans. ·         Tryggingin gildir héðan í frá í ferðum innanlands og utan sem farnar eru á vegum atvinnurekanda. ·         Þá nær tryggingin nú til slysa er verða við íþróttaiðkun, keppni og leiki á vegum atvinnurekanda eða starfsmannafélags. Undanskildar eru tilteknar íþróttagreinar sbr. gr. 8.6.3. ·         Samkvæmt nýja samningnum verða tryggingafjárhæðir slysatrygginga nú verðtryggðar.   Starfsmannaviðtöl Starfsmaður á rétt á viðtali við yfirmann einu sinni á ári um störf sín þ.m.t. frammistöðu og markmið og hugsanlegar breytingar  á starfskjörum. Óski starfsmaður eftir viðtali skal það veitt innan tveggja mánaða og liggi niðurstaða fyrir innan mánaðar.   Heimild til setu á fagtengdum námskeiðum Í núgildandi samning geta starfsmenn varið allt að 12 dagvinnutímum á ári til setu á námskeiðum, þessi tími lengist í 16 í nýjum samning. Eftir sem áður geta starfsmenn varið annað hvert ár 24 dagvinnutímum. Sá tími lengist í 40 tíma ef rafiðnaðarmaður hefur verið 3 ár hjá sama fyrirtæki í nýjum samning.   Laun í erlendum gjaldmiðli Nýr kafli kemur inn í kjarasamninga um heimild til að fá hluta fastra mánaðarlauna greiddan í erlendum gjaldmiðli eða tengja hluta fastra mánaðarlauna við gengi erlends gjaldmiðils með samkomulagi starfsmanns og atvinnurekanda. Þá er nánar kveðið á um hvernig skuli standa að málum í slíkum tilvikum.   Trúnaðarmannanámskeið Gerð er breyting á texta kjarasamninga um trúnaðarmannanámskeið þar sem fram kemur að trúnaðarmannanámskeið séu þau námskeið sem skipulögð eru af stéttarfélögunum og ætlað er að gera trúnaðarmönnum betur kleift að takast á við starf sitt.   Jafnréttisáherslur Samningsaðilar hafa sameinast um áherslur í jafnréttismálum. Þar kemur  fram að jafnir möguleikar kvenna og karla  til starfa, starfsþróunar og launa er hagsmunamál launafólks og fyrirtækja. Í því ljósi muni aðilar vinna saman á samningstímanum að: ·         Þróun vottunarferlis sem fyrirtæki geta nýtt sér og feli í sér vottun á framkvæmd  stefnu um launajafnrétti og jafna möguleika kynjanna til starfa og starfsþróunar. ·         Gera úttekt á launamyndun á vinnumarkaði með sérstöku tilliti til launamyndunar kvenna og karla. ·         Aukin verði fræðsla um jafnrétti á vinnumarkaði með aðgengilegu kynningar- og fræðsluefni fyrir launafólk og fyrirtæki með það að markmiði að styðja starf fyrirtækja og starfsmanna í jafnréttismálum.   Vinnustaðaskilríki Í sérstakri bókun kemur fram að unnið verði áfram að því að innleiða notkun vinnustaðaskilríkja þar sem það á við og beina fyrst sjónum einkum að byggingariðnaði. Fram kemur hvaða skilyrði vinnustaðaskilríkin þurfa að uppfylla og hvernig skuli standa að eftirliti með útgáfu og notkun skilríkjanna og hvaða upplýsingar þar þurfa að liggja til grundvallar.   Uppsögn ráðningarsamninga Nú koma inn ákvæði  varðandi rétt starfsmanna til viðtals við atvinnurekanda um ástæður uppsagnar og að hann geti farið fram á þær séu skýrðar skriflega. Fallist atvinnurekandi ekki á þá ósk starfsmanns á starfsmaður rétt á öðrum fundi með honum um ástæður uppsagnar að viðstöddum trúnaðarmanni sínum eða öðrum fulltrúa stéttarfélags síns ef starfsmaður óskar þess. Einnig er að finna ákvæði um takmörkun uppsagnarheimildar atvinnurekenda og viðurlög.   Samningur um stórframkvæmdir Gengið var frá samning um stórframkvæmdir í stað Virkjanasamnings. Í þeim samning það skilgreint til hvaða framkvæmda hann nær. Ákvæði um sérstaka álagsgreiðslur. Að komu nefndar launamanna að eftirliti og framkvæmd samnings.  Ákvæði um vinnutíma, neysluhlé og aðbúnað. Aðstöðu trúnaðarmanna og ráðningu yfirtrúnaðarmanns.   Bókun um tilkynningu til trúnaðarlæknis/þjónustufyrirtækis á sviði vinnuverndar Samningsaðilar undirrituðu bókun um skipun viðræðunefndar sem ætlað er að ná samkomulagi um fyrirkomulag varðandi tilkynningu veikinda til trúnaðarlæknis/þjónustufyrirtækis á sviði vinnuverndar.   Bókun varðandi læknisvottorð Samningsaðilar eru sammála um að  beina því til heilbrigðisráðherra að hann beiti sér fyrir breytingu á reglum um læknisvottorð. Gerð verði krafa um sérstök læknisvottorð þegar um er að ræða langtímafjarvistir. Ef starfsmaður hefur verið óvinnufær vegna sjúkdóms eða slyss í fjórar vikur samfellt skal í læknisvottorði taka afstöðu til þess hvort starfsendurhæfing sé nauðsynleg til að ná eða flýta bata.   Bókun varðandi atvinnusjúkdóma Samningsaðilar munu sameiginlega beita sér fyrir því að sett verði reglugerð um skráningu bótaskyldra atvinnusjúkdóma. Þá kemur fram að samningsaðilar telja mikilvægt að efla rannsóknir og fyrirbyggjandi aðgerðir á sviði atvinnusjúkdóma á vettvangi Vinnueftirlits ríkisins.   Framlag stjórnvalda við gerð kjarasamninganna Skattamál ·         Persónuaflsáttur hækkar um 7.000 kr. á þremur árum umfram verðlagsbreytingar. Þetta þýðir að skattleysismörk hækka úr 95.280 í ár í 115.000 kr. árið 2010, á föstu verðlagi. Að auki hækka skattleysismörkin í samræmi við verðbólgu. ·         Dregið verður umtalsvert úr tekjuskerðingum barnabóta. Í ár hækka þau mörk þegar tekjur byrja að skerða barnabætur í 120.000 kr. mánaðartekjur hjá einstæðu foreldri og í 240.000 kr. hjá hjónum. Að auki lækka skerðingarprósentur vegna annars og þriðja barns um 1% stig. Árið 2009 hækka tekjuskerðingarmörkin hjá einstæðu foreldri í 150.000 kr. og hjá hjónum í 300.000 kr.   Vöruverð ·         Ríkisstjórnin ætlar að beita sér fyrir aðgerðum til að lækka vöruverð, einkum matvælaverð.   Húsnæðismál ·         Húsaleigubætur hækka umtalsvert þegar á þessu ári. Þannig hækka hámarks húsaleigubætur úr 31.000 kr. á mánuði í 46.000 kr. ·         Lánsvilyrðum til félagslegra leiguíbúða með niðurgreiddum vöxtum verður fjölgað í 750 á ári í fjögur ár, frá og með árinu 2009. ·         Eignaskerðingarmörk vaxtabóta verða hækkuð um 35%, þegar á þessu ári. ·         Stefnt verði að því að fella niður stimpilgjöld vegna lána til kaupa á fyrstu fasteign. ·         Komið verður á húsnæðissparnaðarkerfi með skattaafslætti fyrir einstaklinga 35 ára og yngri.   Átak í fullorðinsfræðslu og starfsmenntun Ríkisstjórnin og aðilar vinnumarkaðarins stefna að því að ekki verði fleiri en 10% fólks á vinnumarkaði án viðurkenndrar starfs- og framhaldsskólamenntunar árið 2020. Í þessu felst að gera verður stórt átak í fræðslumálum þeirra sem ekki hafa viðurkennda starfs- eða framhaldsskólamenntun. ·         Tryggt verður að allir hafi tækifæri til náms að loknu grunnskólanámi þar sem jafnræðis er gætt varðandi kostnaðarþátttöku hins opinbera. ·         Reglur Lánasjóðs íslenskra námsmanna verða endurskoðaðar þannig að jafnræði varðandi tækifæri til náms verði tryggt. ·         Stefnt verður að því að kostnaður nemenda á framhaldsskólastigi vegna skráningar- og efnisgjalda verði óverulegur. ·         Framlög til símenntunar og fullorðinsfræðslu verða aukin um 300 milljónir á næstu tveimur árum.

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?