Fréttir frá 2008

05 9. 2008

Stjórnarformaður OR gefur á garðana

Iðnaðarmenn eru þessa dagana að reyna að ná kjarasamning við Orkuveitu Reykjavíkur og ekkert gengur. Deilunni var vísað til ríkissáttasemjara á föstudaginn vegna þess að svör höfðu ekki borist frá samninganefnd OR í þrjár vikur. Stjórnarformaður OR setti fram í vitali við RÚV mjög ásættanleg drög að lausn deilunnar. Iðnaðarmenn eru þessa dagana að reyna að ná kjarasamning við Orkuveitu Reykjavíkur og ekkert gengur. Deilunni var vísað til ríkissáttasemjara á föstudaginn vegna þess að svör höfðu ekki borist frá samninganefnd OR í þrjár vikur. Það er víst að iðnaðarmenn OR taka ummælum stjórnarformanns OR í hádegisútvarpinu fimmtudag 8. maí fagnandi um laun og launakjör hjá Reykjavíkurborg og stofnunum borgarinnar. Reyndar virðist oft vera svo þegar stjórnmálamenn eru annarsvegar að þeir skilja glögglega á milli launa og kjara sinna og vildarvina og svo launa annarra starfsmanna. Þegar laun almennra starfsmenn hafa borið á góma þá eiga þeir að mati stjórnmálamanna að sína ábyrgð og ekki fara óvarlega með stöðugleikann og valda óþarfa verðbólgubáli. Nú munu iðnaðarmenn OR vitanlega láta á það reyna í Karphúsinu hvort skoðun stjórnarformannins nái örugglega ekki líka yfir almenna starfsmenn þess fyrirtækis sem hann stjórnar. Stjórnarformanninum hefur ítrekað í fjölmiðlum verið tíðrætt um þau miklu auðæfi sem fólgin eru í starfsmönnum OR, 10 milljarða að mig minnir. Þessi auðæfi hafa m.a. leitt til ferðalaga stjórnarformannsins til annarra heimsálfa þar sem hann hefur falboðið þessa þekkingu.

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?