Fréttir frá 2008

06 13. 2008

Ferð fyrir eldri félaga 4. júlí

Ferð fyrir eldri félaga Rafiðnaðarsambandsins verður farin þann 4.  júlí. Með ferðinni vill Rafiðnaðarsambandið þakka eldri félögum tryggð og stuðning í gegnum árin. Farið verður frá Stórhöfðanum kl. 13 og haldið á Draugasafnið á Stokkseyri sem verður skoðað og boðið upp á léttar veitingar. Þá liggur leiðin í Veitingahúsið Hafið bláa þar sem snæddur verður síðdegisverður. Það kom upp misskilningur hjá skipuleggjendum ferðarinnar sem við viljum gjarnan leiðrétta. Það kom ekki fram í útsendu bréfi til félaga að makar væru boðnir með en sú er raunin. Makar eru boðnir með og eru hjartanlega velkomnir. Við vonum svo að sem flestir mæti og njóti ferðarinnar með mökum eða makalausir hvort heldur þeir kjósa.

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?