Vinsældir orlofssvæðisins á Skógarnesi við Apavatn hafa aldrei verið meiri. Svæðið er fjölskyldusvæði og er ætlast til að dvalargestir hagi umgengni sinni samkvæmt því, ró á að vera komin á um miðnætti. Leyfi til að tjalda á svæðinu hafa einungis félagsmenn Rafiðnaðarsambands Íslands og gestir í fylgd félagsmanna.