11 29. 2008
- Ítarupplýsingar
Undanfarið hafa staðið yfir viðræður um endurnýjun kjarasamninga við Ísal, Elkem Grundartanga, Landsvirkjun, Landsnet, RARIK, Norðurorku, Reykjavíkurborg, RÚV og Landsímann.
Á föstudag 28. nóv. var undirritaður nýr kjarasamningur við Ísal. Samningurinn nær til janúar 2011. Samið var um svipaða upphafshækkun og samið hefur verið í öðrum samningum. Reiknað er með að um helgina náist niðurstaða við Reykjavíkurborg. Viðræður við Landsvirkjun og Landsnet eru vel á veg komnar og er vonast til að ná lendingu þar í næstu viku.