Fréttir frá 2007

01 18. 2007

Byrjað að reisa nýju húsin

Þrátt fyrir harðan vetur þá gengur bygging nýs orlofshúshverfis við Apavatn samkvæmt áætlun.   Þrátt fyrir harðan vetur þá gengur bygging nýs orlofshúshverfis við Apavatn samkvæmt áætlun. Reiknað er með að í næstu viku verði búið að loka fyrsta húsinu og innivinna hefjist. Samfara því hefst vinna við að reisa hús nr. 2. Gert er ráð fyrir aðhúsin verði tekin í notkun um páskana. Erfiður vetur hefur gert verktökum erfitt fyrir.   Suðurhlið. Pallurinn kemur þar sem bíllinn stendur og heiti potturinn við útigeymsluna. Stofan er næst okkur svo er útgangur út á pallinn og handan henn er eldhúsglugginn. Svefnherbergin 3 eru svo þvert yfir húsið fjærst okkur. Í útigeymslu verður snyrting og sturta fyrir heita pottinn. Húsið er liðlega 90 ferm. að stærð. . Hér sést austurhlið, aðalinngangur er í skotinu. Í útskotinu milli inngangs og stofunnar verður baðherbergið.   

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?