Fréttir frá 2007

04 10. 2007

A-húsin til sölu

 Vegna lítillar nýtingar á A-húsunum í Þórsmörk undanfarin sumur hefur verið ákveðið að hætta þeim rekstri og skoða aðra kosti. Húsin eru til sölu og sýnis að Stórhöfða 31.Nýting A-húsanna í Þórsmörk hefur farið minnkandi með hverju sumri undanfarin ár. Í vor var ákveðið að gera lokatilraun, en nýting var samt sem áður mjög léleg og eru því húsin til sölu. Nýting tjaldvagnanna síðastliðið sumar var aftur á móti einstaklega góð og allir í útleigu nær hverja einustu helgi í allt sumar. Það liggur fyrir miðstjórn tillaga um að fjölga þeim frekar. Tjaldvagnana er auðvelt að taka með sér inn í Mörk eða þangað sem hugurinn girnist.   A-húsin eru 2004 árgerð. Verð er kr. 1.250.000 kr. Húsin eru til sölu og sýnis að Stórhöfða 31.    

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?