Fréttir frá 2007

04 28. 2007

Endurskoðun á veikinda-, slysa- og örorkubótarétti.

Gylfi Arnbjörnsson framkv.stjóri ASÍ hélt erindi á þinginu um viðræður um endurskoðun á veikinda-, slysa- og örorkubótarétti. Hann sagði að við undirbúning komandi kjarasamninga stæðu nú yfir flóknustu og viðamestu viðræður ASÍ og SA í áraraðir. Afstaða SA til þessara viðræðna væri ný og eftirtektarverð. Það eru ýmis álitamál og vafamál eiga eftir að koma upp sem finna þarf lausnir á. Hanna þarf nýtt réttindakerfi í smáatriðum.Gylfi Arnbjörnsson framkv.stjóri ASÍ hélt erindi á þinginu um viðræður um endurskoðun á veikinda-, slysa- og örorkubótarétti. Hann sagði að við undirbúning komandi kjarasamninga stæðu nú yfir flóknustu og viðamestu viðræður ASÍ og SA í áraraðir. Afstaða SA til þessara viðræðna væri ný og eftirtektarverð. Gylfi Arnbjörnsson framkv.stj. ASÍ   Það eru ýmis álitamál og vafamál eiga eftir að koma upp sem finna þarf lausnir á. Hanna þarf nýtt réttindakerfi í smáatriðum. Meta þarf kostnað af nýju kerfi og sparnað í núverandi kerfi. Ræða þarf við stjórnvöld um verkaskiptingu og lagabreytingar. Það er röng nálgun í núverandi örorkumatstaðli sem samrýmist ekki nútíma nálgun á viðfangsefninu. Forsendur á mati eiga að vera fjölþættar, ekki bara læknisfræðilegar. Núverandi bótaréttur miðast við fulla örorku og fólki sem vill og getur verið þátttakandi á vinnumarkaði í hlutastarfi er kerfisbundið refsað. Ef t.d. 35 ára einstaklingur endurhæfist úr 75% örorku í 65% missir hann mikilvæg réttindi eða sem svarar 102 þús. kr. á mánuði í bætur! Þetta leiðir vitanlega tril þess að hann gerir ekkert í sínum málum og er í raun dæmdur til áframhaldandi fátæktar. Kerfið er komið algjörar ógöngur með tekjutengingar bæði milli almannatrygginga og lífeyrissjóða og þessara bóta og atvinnutekna. Fjölga verður raunhæfum endurhæfingarúrræðum og tryggja fólki bæði rétt og fjárhagslega getu til þess að sækja endurhæfingarúrræði með skýrari ákvæðum um greiðsluþátttöku ríkisins og sjóðanna. Það er algjör nauðsyn að koma í veg fyrir að fólk einangrist heima hjá sér með sín vandamál þannig að og seint kunni að verða að grípa inn með endurhæfingu. Við verðum að breyta aðferðum við mat á örorkiu og leggja meiri áherslu á endurhæfingu og virkni. Auka á réttindi fólks frá því sem nú er og tryggja snemmbæra íhlutun og vera með virkan hvata til endurhæfingar. Við þurfum að endurskoða afstöðu okkar til þess að við höfum samið um að félagsmaður fái að vera heima óárettur í veikindum án afskipta atvinnurekanda, sjúkrasjóða eða endurhæfingaraðila í allt að 1 mán. Þetta leiðir til þess að það eru talsverðar líkur á að það geti endað með langvarandi örorku og afkomumissi. Kannanir okkar sýna að núverandi kerfi leiðir til varanlegrar fátæktar. Við eigum að endurskoða ákvæði kjarasamninga hvað varðar veikindarétt. Við eigum að setja stefnuna á að auka lífsgæði fólks sem missir starfsorkuna og efla og fjölga raunverulegum endurhæfingarúrræðum. Þetta þýðir að það þurfi að efla sjúkrasjóði svo þeir geti tekist á við þetta verkefni. Það kom glögglega fram hjá þingfulltrúum að þeim leist vel á þessa nálgun og vildu að samningamenn sambandsins færu lengra á þessari braut og könnuðu hvaða niðurstöður standi til boða.

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?