Fréttir frá 2007

05 31. 2007

Er sársaukinn söluvara?

Sársauki hefur öðlast sérstöðu í menningarheimi okkar. Spjallþættir fjalla um sársauka og við tekur raunveruleikasjónvarpið sem snýst um andlegan sársauka og niðurlægingu. Kvöld eftir kvöld sitjum við fyrir framan sjónvarpið og fylgjumst með niðurlægðu fólki, sem grátandi brotnar undan sársaukanum. Við stökkvum fram og skellum poppi í örbylgjuna, meðan auglýsingarnar renna í gegn, svo við missum ekki af næsta niðurbroti. Glanstímaritið býður okkar á náttborðinu með viðtölum um framhjáhald, misnotkun eiturlyfja, missi sona og dætra. Sjálfævisagan um erfiða æsku og kynferðislega misnotkun bíður næsta kvölds, eða fær að koma með í sumarbústaðinn.Sársauki hefur öðlast sérstöðu í menningarheimi okkar. Blaðamenn og stjórnendur spjallþátta leita í sífellu eftir sársauka hjá viðmælenda. Raunveruleikasjónvarpið snýst um þjáningar. Þar er reynt á líkamlegt sársaukaskyn, en oftar snúast þættirnir um andlegan sársauka og niðurlægingu. Kvöld eftir kvöld sitjum við fyrir framan sjónvarpið og fylgjumst með niðurlægðu fólki, sem grátandi brotnar undan sársaukanum. Við stökkvum fram og skellum poppi í örbylgjuna, meðan auglýsingarnar renna í gegn, svo við missum ekki af næsta niðurbroti. Glanstímaritið býður okkar á náttborðinu. Þar eru viðtöl sem lýsa framhjáhaldi, misnotkun eiturlyfja, missi sona og dætra. Sjálfævisagan um erfiða æsku og kynferðislega misnotkun bíður næsta kvölds, eða fær að koma með í sumarbústaðinn um næstu helgi.   Þjáningar eru neysluvara dagsins. Hvað gerist þegar við fáum leið á kynferðislegu ofbeldi? Viljum við þá eitthvað nýtt? Hvar verða mörk sársaukans? Verðum við skeytingalaus fyrir óförum annarra? Hvað skemmtir okkur þá? Erum við farinn að samsama okkur við pólitískan boðskap Túskildingsóperunnar um starfsmannaleiguna 2P og Vin litla mannsins Group, sem breyta þjáningum fólks í peninga? Allt er til sölu, aðgangur að börnum og stúlkum til kynferðislegs ofbeldis eða vinnuframlag blásnauðra fjölskyldufeðra. Fasteignir eða tilfinningar fólks. Er engin munur er á því að ræna banka og kaupa banka, eins er boðskapur óperunnar?   Það eru sjálfumglaðir ungkarlar, sem virðast ráða för. Ungkarlar í pólitík sem ekki höfðu tíma aflögu til þess að ljúka langskólanámi og þaðan af síður að skrifa ritgerðir og vinna aðföng. Þeir fóru frekar að vinna á fjölmiðlum og svo birtast þeir spjallþáttum. Þar sem þeir ræða um spuna sinn, sem er í raun ekkert annað en óraunsær raunveruleikafarsi og á að heita fréttir síðustu viku. Þeir telja sig þurfa að segja okkur hver áhrif spunafréttanna eigi að vera. Ákafir telja þeir okkur í trú um að þeir séu kjörnir til að leiða lýðinn, svo uppteknir, að þeir hafa ekki tíma til að afla sér menntunar.   Aggressív fréttamennska er nauðsyn nútímaþjóðfélagi, en hún er vandasöm og krefst þekkingar. Hún snýst ekki um sársauka einkalífs eða um að niðurlægingu. Hún er ekki spuni, hún á að taka á þeim sem hafa glatað mörkum tilfinningaseminnar fyrir framan raunveruleikasjónvarpið og breyta þjáningum fólks í peninga. Svo eru það hinir þröngsýnu umræðustjórnendur fréttaskýringanna, sem hefja sig upp fyrir umræðuna og veitast að þeim sem eru henni ekki sammála. Guðmundur Gunnarsson

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?