Fréttir frá 2007

06 17. 2007

Nú er kominn 17. júní

Skemmtanahaldið 17. júní. hefur einhvern vegin misst ferskleikann til kontórista sem raða sér upp íklæddir jakkafötunum meðan forsætisráðherra flytur ræðu með hefðbundnum skilaboðum til almúgans um hvað hanni megi gera og hvaða skoðanir séu réttar. Sautjándi júni er runninn upp, aldrei þessu vant er stillt og gott veður og við eigum að gleðjast yfir því að vera sjálfstæð þjóð. Davíð Oddsson er nýbúinn að endurskipa sitt lið í stjórn Seðlabankans. Halldór Blöndal var settur þar inn eftir að hann hætti á þingi. Ég minnist þess ekki að Halldór hafi tekið þátt í umræðu um efnahagsmál, en hann er aftur á móti þokkalegur hagyrðingur og flutti oft þungar ræður á þingi með stuttum kviðlingum til stuðnings valdhöfunum. Seðlabankaráð hækkaði laun seðlabankastjóra um 200 þús. kr. á mán. eða upp í 1.8 millj k.r á mán. En er einn þeirra ekki líka á fullum eftirlaunum á grundvelli þeirra laga sem hann setti sjálfur skömmu áður hann hætti sem forsætisráðherra? Þeir hagfræðingar sem ég þekki eru sammála um að stjórn Seðlabankans hafi í sjálfu sér ekki mikið með efnahagsstjórnina að gera. Flest önnur lönd eru búinn fyrir margt löngu að afleggja flokkspólitíska stjórn Seðlabankanna. Þar er einn seðlabankastjóri og þeir eru með um milljón á mán. í laun.    En okkur almennum launamönnum voru í kjölfar þessarar 200 þús. kr. hækkunar mán. launa seðlabankastjóranna send þau skilaboð frá stjórnvöldum að stemma þyrfti stigu við launahækkunum almennings í komandi kjarasamningum svo blessaður stöðugleikinn fari ekki fjandans til og rekstrargrundvallarræfillinn með. Þeir í Seðlabankastjórninni fá tvöföld lágmarkslaun almennings á mán. fyrir að sitja 2 fundi á mán. Almúginn þarf reyndar að skila 174 vinnutímum til þess að ná upp fyrir 100 þús. kallinn og fær heldur ekki ókeypis GSM síma og fría áskrift að Mogganum. Þessu má ekki breyta því þá missa þeir félagar tök á efnahagsmálunum. Seðlabankinn er orðið eitt af síðustu vígjum pólitíkusanna, reyndar má minna á að Davíð skipaði 9 af sínum bestu vinum sem sendiherra áður en hann hætti, Þeir hafa allir um 9 föld lágmarkslaun almúgans og öðlast sérstök réttindi samkvæmt sértækum eftirlætiseftirlaunalögum Davíðs. Það eru launamenn sem sitja eftir í skattkerfinu á meðan peningamenn flytja sína peninga til annarra landa og greiða einungis fjármagnstekjuskatt af þeim litla hluta sem er á ferðinni hér. Þeir eru ekki þátttakendur í rekstri þjóðfélagsins, einungis neytendur. Almúginn  greiðir fyrir þá skólaþjónustu, heilbrigðiskerfi og vegakerfi. Þeir þurfa heldur ekki að standa undir rekstri hinna mýmörgu sendiherra og stjórn Seðlabankans. Það gerir einungis almúginn, sá hópur verður líka að bera ábyrgð á stöðugleikanum og má ekki hafa há laun og helst ekki eftirlaun. En þeir sem hreyfa einhverjum mótmælum við þessu ástandi eru taldir æsingamenn og koma úr vinstra liðinu. Þetta eru fullgild rök í hugum þeirra sem hafa völdin og þessar fullyrðingar þarfnast engra skýringa að þeirra mati. Fulltrúar þessara manna skrifa einnig söguna eins og þeir vilja hafa hana, t.d. var í blöðunum nýverið grein eftir einn af stjórnarmönnum Seðlabankans, þar sem hann segir að Þjóðarsáttin hafi engin áhrif haft, hún hafi bara verið verðstöðvun í nokkra mánuði. Þá hafi tekið við Davíð og hans lið og þeir bjargað málunum í harðri baráttu við aðila vinnumarkaðsins. Þessi hin sami skrifaði hverja greinina á fætur annarri í vor þar sem hann sýndi okkur snilli sína í efnahagsstjórn  með því að snúa á haus öllum rannsóknum sem sýndu að aðgerðir stjórnvalda hefðu leitt til aukins ójafnræðis hér á landi. Hann hafnaði alfarið öllum rökum sem sett höfðu verið fram m.a. að persónuafsláttur hefði ekki hækkað í samræmi við verðbólgu, vaxtabætur minnkað, barnabætur lækkað, skerðingarmörk öryrkja og aldraðra aukist.   Umræddur Seðlabankastjórnarmaður er þekktur fyrir að skrifa og semja sagnfræðina, og Sjónvarp allra landsmanna keypti heila myndaseríuna sem hann samdi um sögu síðustu aldar og sýndi á besta útsendingartíma. Sama gilti um alla grunnskóla landsins þeir voru látnir kaupa alla seríuna. Í  þessum söguskýringum þá eru það útvaldir hægri stjórnmálamenn sem gerðu allt sem gott var á síðustu öld. Í vegi þeirra stóðu æsingamenn úr röðum verkalýðshreyfingar og aukins kvennfrelsis. Það voru útvaldir hægri menn sem komu á reglulegum vinnutíma, lífeyrissjóðum, sjúkrasjóðum og bættum aðbúnaði verkafólks. Við búum í dag við það ástand að sagnfræðingum stendur ekki til boða fjármagn og vinnufrelsi nema frá sjóðum sem er stýrt af stjórnmálamönnum sem eru hlyntir ráðmndi stjórnvöldum. Þetta leiðir sagnfræðingana bjarglausa að fótskör þeirra sem telja sig vera mikilmenni þessa lands. Gagnrýnishlutverk fræða og vísinda er múlbundið hagsmunabandalagi valdhafanna. Aðrir eru úr vinstra liðinu og eru æsingafólk. Skemmtanahaldið 17. júní. er skipulagt af pólitískum kontóristum og forsætisráðherra flytur ræðu með hefðbundnum skilaboðum til almúgans um hvað hanni megi gera og hvaða skoðanir séu réttar. Sumir vilja banna pylsur og MC Donalds á svona dögum og selja lifrarpylsur og kjamma í sölutjöldunum. Allir ættu að vera í þjóðlegum fötum og ungir karlar tækju eina bröðgótta á Arnarhól, meðan karlakórar syngju sléttubönd og konur prjóna axlabönd. Nei unga fólkinu finst þetta svo leiðinlegt að það leitar sér skemmtunar við að setja allt á annan endan, hella er úr ruslafötum, grýta bjórflöskum um allt, ráðast að fólk og sparka það niður. Ungir menn aka um á tæpum 200 km. hraða og við hin búum við öryggi sem samsvarar því að ökuníðingar gangi um með hlaðnar byssu og hleypi af öðru hvoru blindandi út í loftið. Svo kemur að því að einhver verður svo ósvífinn að ganga í veg fyrir kúluna, það er honum að kenna. En eftir 2 daga er annar þjóðhátíðardagur, þann 19 júní er 40 ár síðan konur fengu kosningarétt. En ofarlega eru mér í minni orð sem höfð um baráttuna gegn þeim óþarfa að gefa konum aukið frelsi. ?Góðir íslendingar ég higg að það sé þarft verk að halda konum frá því að taka þátt í pólitísku skítkasti. Þeirra hlutverk er að vera móðir og á að halda sér við heimilistörfin.?  Nú er búið að skerða frelsi reykingamanna til að eitra loftið fyrir öðrum og komið fullt reykingabann á veitingastöðum borgarinnar. Þetta hefur vitanlega hliðarverkanir eins t.d. við súlustaðina. Þannig standa til dæmis nektardansmeyjar á Bóhem við Grensásveg úti á nærbuxunum einum fata og reykja sínar rettur á milli atriða. Þetta láta íslenskir karlmenn ekki framhjá sér fara og umferð um Grensásveg að kvöldlagi er sögð hafa snaraukist. En nokkrir þeirra eru reyndar uppteknir við að berja spánska sjóliða og bíta af þeim eyrun, en stelpurnar hafa núorðið fullt frelsi og eru full frakkar að mati íslensku strákanna. Til hamingju með daginn Guðmundur Gunnarsson

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?