Fréttir frá 2007

11 18. 2007

Afleiðing aukinnar frjálshyggju

Í Morgunblaðinu í dag (18.11.) er athyglisverð grein um hvernig heilbrigðiskostnaði er miskipt milli þjóðfélagshópa. Rúnar Vilhjálmsson prófessor í heilsufélagsfræði hefur staðið að tveimur heilbrigðisrannsóknum. Í þeim kemur fram veruleg útgjaldaaukning einstaklinga vegna heilbrigðisþjónustunnar. Þessi útgjöld námu 1% af vergri landsframleiðslu árið 1987 en höfðu aukist verulega og voru 1.7% árið 2004.Í Morgunblaðinu í dag (18.11.) er athyglisverð grein um hvernig heilbrigðiskostnaði er miskipt milli þjóðfélagshópa. Rúnar Vilhjálmsson prófessor í heilsufélagsfræði hefur staðið að tveimur heilbrigðisrannsóknum. Í þeim kemur fram veruleg útgjaldaaukning einstaklinga vegna heilbrigðisþjónustunnar. Þessi útgjöld námu 1% af vergri landsframleiðslu árið 1987 en höfðu aukist verulega og voru 1.7% árið 2004. Þótt við séum með félagslegt heilbrigðiskerfi til að jafna út kostnaðinn hefur ekki tekist að jafna kostnaðarbyrðar milli þjóðfélagshópa. Það hallar á hópa sem síst skyldi eins og öryrkja og aldraða og þá sem lægstar tekjur hafa. Hér er um að ræða þá sem ekki hafa vinnu og lágtekjufólk sem hefur misst maka. Til þess að styrkja félagslega heilbrigðiskerfið þarf að efla almannatryggingarkerfið með það fyrir augum að lækka lyfjakostnað og komugjöld sjúklinga. Einnig þarf að styrkja heimilislæknakerfið og heilsugæslustöðvarnar. Efla nýtingu afsláttarkorta og lyfjaskýrteina og auka nálægð þjónustunnar. Það vakti mikla athygli hversu áberandi umræða skyld mál var á síðustu trúnaðarmannaráðstefnu Rafiðnaðarsambandsins. Þar bar mest á umræðu um þá miklu hagræðingu sem hefur átt sér stað í heilbrigðiskerfinu á undanförnum áratug. Ekki hefur verið staðið að uppbyggingu hjúkrunarheimila í samræmi við fjölgun aldraðra, deildum hefur verið lokað á spítölum vegna hagræðingar og þannig mætti lengi telja. Umönnun sjúkra og aldraðra minnkar ekki þó stjórnvöld standi fyrir umfangsmikilli hagræðingu til þess að spara útgjöld ríkisins. Þau hafa staðið fyrir stórfelldum flutning á þessum kostnaði yfir á heimilin, sem sjá um umönnunina í dag. Fólk þarf að taka sér frí frá vinnu eða jafnvel hætta þátttöku í atvinnulífinu til þess að hlúa að sjúkum og/eða öldruðum ættingjum. Á trúnaðaðarráðstefnu RSÍ var sett fram sú krafa að heimilin fengju sinn hlut af þessari hagræðingu, það væri ekki réttlátt að hún renni óskipt í ríkissjóð. Heimilin eigi rétt á að sækja launatap vegna umönnunar  í ríkissjóð og auka þurfi verulega heimilisþjónustu. Sjá fyrri færslur um þessi mál á heimasíðunni hér og hér og hér og hér og reyndar nánast allar ályktanir rafiðnaðarmanna undanfarin ár. Við erum með félagslegt heilbrigðiskerfi en þessi þróun samræmist ekki réttlætiskennd okkar og stangast reyndar einnig á við lög um heilbrigðisþjónustu sem segja að óheimilt sé að mismuna sjúklingum. Í þessu sambandi má benda á þau markmið sem stjórnmálamenn hafa sett í heilbrigðisáætlun til 2010 að aðgengi að heilbrigðisþjónustunni ´seauðvelt og sem jafnast fyrir alla landsmenn. gg    

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?