12 4. 2007
- Ítarupplýsingar
Aðsókn félagsmanna í íbúðir í Kaupmannahöfn hefur farið framúr björtustu vonum. Nú í byrjun desember verður sú breyting að íbúðirnar við Niels Hemmingsensgade og Köbmagergade fara út en í staðinn kemur glæsileg íbúð við Nyhavn 33, íbúðin er 130fm. að stærð á fyrstu hæð (1.sal) ofan götuhæðar, nýuppgerð og glæsileg hvar sem litið er, auk þess bjóðum við áfram glæsiíbúðina við Toldbogade 10c . Nánari lýsing á Nyhavn 33 kemur á orlofsvefinn innan skamms.
Núna í desember stendur yfir umsóknarfrestur um dvöl í Kaupmannahöfn og á Spáni tímabilið frá páskum (19.mars´08) til loka september 2008, hægt er að sækja um rafrænt á orlofsvefnum.