12 19. 2006
- Ítarupplýsingar
Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Reykjavík hefur veitt Stígamótum styrk að upphæð kr. 450.000,-. Guðrún Jónsdóttir og Guðný Hafliðadóttir veittu styrknum viðtöku f.h. samtakanna þann 13. desember 2006. Styrknum verður varið til þess að efla sjálfshjálparhópa Stígamóta.Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Reykjavík hefur veitt Stígamótum styrk að upphæð kr. 450.000,-. Guðrún Jónsdóttir og Guðný Hafliðadóttir veittu styrknum viðtöku f.h. samtakanna þann 13. desember 2006. Styrknum verður varið til þess að efla sjálfshjálparhópa Stígamóta.
Sjálfshjálparhóparnir eru lokaðir hópar 4-6 einstaklinga sem ásamt leiðbeinenda skuldbinda sig til þess að hittast 15 sinnum, þrjá tíma í senn. Í hópunum er farið skipulega í gegnum ýmsa þætti sem tengjast ofbeldinu. Það er í sjálfshjálparhópunum sem fólk lýsir því að það nái verulegum árangri í að öðlast meiri lífsgæði, sjálfsöryggi og styrk. Á hverju ári eru starfræktir 6-15 hópar. Frá upphafi hafa þannig verið reknir um 200 hópar sem hafa skilað samfélaginu sterkari, öruggari og lífsglaðari konum og einnig nokkrum körlum.