Fréttir frá 2005

01 28. 2005

Samningur við Alcan (ISAL) undirritaður

Um miðnætti í gær var nýr kjarasamningur stéttarfélaganna við Alcan undirritaðurVið ræður um endurnýjun kjarasamnings við Alcan hafa staðið yfir síðan í nóvember. Samningurinn er flókinn, þá sérstaklega vegna flókinna bónuskerfa. Mikil vinna var lögð í að enduskoða bónuskerfin og nokkur önnur atriði samningsins. Samningurinn er framlengdur til 30. nóvember 2008. Launahækkanir á samningstíma eru svipaðar og í öðrum samningum. Samið er um samskonar breytingar á lífeyrisgreiðslum og á almennum markaði. Ákveðin hluta fastra bónusgreiðslna er flutt inn í launakerfin. Samningurinn verður borinn upp í næstu viku.

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?