Fréttir frá 2005

02 28. 2005

Góð ávöxtun og traust staða á árinu 2004 hjá Lífiðn

Árið 2004 var hagstætt fyrir Lífeyrissjóðinn Lífiðn. Ávöxtun var góð og eignir umfram heildarskuldbindingu 2,1 milljarður. Heildareignir Lífiðnar uxu um 20% milli ára og séreignarsjóður um 50% á árinuÁrið 2004 var hagstætt fyrir Lífeyrissjóðinn Lífiðn. Ávöxtun var góð og eignir umfram heildarskuldbindingu 2,1 milljarður. Heildareignir Lífiðnar uxu um 20% milli ára og séreignarsjóður um 50% á árinu Eignir umfram skuldbindingu 2,1 milljarður ? tryggingastaðan einstök Staða Lífiðnar er einstaklega sterk, þar sem eignir umfram skuldbindingar eru 2,1 millj­arður króna. Tryggingastaða sem mælir þetta sýnir 4,2% jákvæða stöðu sjóðsins, sem er nánast einsdæmi meðal íslenskra lífeyrissjóða. Árið 2004 var voru kynntar nýj­ar lífslíkutölur sem boða lengri meðalævilengd Íslendinga sem þyngir skuld­bindingar lífeyrissjóða um 3-4 prósentustig. Þrátt fyrir þessi tíðindi stendur sjóðurinn vel.   Ávöxtun Ávöxtun Lífiðnar á árinu  2004 var 13,4%, eða 8,9% hrein raunávöxtun. Árið 2003 var raunávöxtunin 9,9%. Meðaltal raunávöxtunar frá stofnun sjóðsins árið 1997 er um 5%. Góða ávöxtun má rekja til hagstæðra skilyrða á verðbréfamörkuðum, sér­stak­lega á innlendum hlutabréfamarkaði en styrking íslensku krónunnar dró úr ávöxt­un seinni hluta árs. Varfærin fjárfestingarstefna mörkuð af stjórn Lífiðnar hefur skilað sjóðnum tryggingafræðilega í fremstu röð.   Eignir Heildareignir Lífiðnar námu 27,2 milljörðum í árslok 2004, þar af nema eignir séreignardeildar 570 milljónum. Heildareignir sjóðsins hækkuðu um 4,4 milljarða á árinu eða um 20% og séreign um 50%.  Eignir Lífiðnar skiptast þannig að innlend hlutabréf voru 12%, erlend hlutabréf 16%, skráð markaðsskuldabréf 46% og veðlán 24%.   Iðgjaldatekjur og lífeyrisgreiðslur Árið 2004 greiddu um 5.000 manns til sjóðsins og námu iðgjaldatekjur alls 1,7 milljarði króna sem um 1.300 launagreiðendur stóðu skil á. Á árinu nutu 629 lífeyrisþegar lífeyris­ að fjárhæð 305 milljónum króna. Greiddur lífeyrir sem hlutfall af iðgjaldatekjum er 18% sem er með því lægsta sem gerist hjá lífeyrissjóðum. Ástæða þess er lágur meðalaldur sjóð­félaga.   SameiningarviðræðurStjórnir Lífiðnar og Samvinnulífeyrissjóðsins tilkynntu 7. febrúar sl. að gert hafi verið sam­komulag um að kanna möguleika á sameiningu sjóðanna. Markmið samruna er aukið rekstrarhagræði, efling eignastýringar og bætt þjónusta við sjóð­félaga og launa­greið­endur. Ætla má að heildareignir sameinaðs sjóðs verði 50-55 milljarðar

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?