Fréttir frá 2005

05 12. 2005

Nýr kjarasamningur við Ratsjárstofnun

Fyrir stundu var undirritaður nýr kjarasamningur RSÍ við Ratsjárstofnun. Launakostnaðarauki er svipaður og í öðrum fastlaunasamningum sem sambandið hefur gert undanfarið. Einnig er í samningnum tekið á þeim atriðum sem breytast vegna þeirrar hagræðingar sem verið er að gera á rekstri stofnunarinnar. Tæplega 40 rafiðnaðarmenn starfa eftir þessum samning og fer hann í póstatkvæðageiðslu, niðurstaða mun liggja fyrir 23. apríl.    

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?