Fréttir frá 2005

06 20. 2005

Viðauki við Ratsjárstöðvarsamning samþykktur

Fyrir nokkru var kjarasamningur við Ratsjárstofnun felldur. Á meðan samningurinn var í afgreiðslu risu upp deilur milli starfsmanna og fyrirtækis. Aðilar hittust síðan og ræddu málin og náðist samkomulag um viðauka við samning þar sem var tekið á helstu deiluatriðum.   Kjörfundi lauk í dag kl. 13.00. Alls kusu 51,2 %. Já sögðu 87,5 %. Nei sögðu 12,5 %. Samningurinn ásamt viðauka telst því samþykktur.

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?