09 27. 2005
- Ítarupplýsingar
Ávöxtun í séreign fyrstu 8 mánuði ársins Um þessar mundir er verið að vinna og senda út yfirlit til eigenda réttinda í sameignardeild Lífiðnar og til þeirra sem inneign eiga í séreignarsparnaði hjá sjóðnumFrétt frá Lífiðn - ávöxtun í séreign fyrstu 8 mánuði ársins
Um þessar mundir er verið að vinna og senda út yfirlit til eigenda réttinda í sameignardeild Lífiðnar og til þeirra sem inneign eiga í séreignarsparnaði hjá sjóðnum.
Með yfirlitunum eru sendar upplýsingar um ávöxtun sparnaðarleiða fyrstu átta mánuði ársins. Þar sem breytingar voru gerðar á sparnaðarleiðum sjóðsins sem tóku gildi 1. apríl sl., er ávöxtun birt í tvennu lagi; annars vegar fyrir tímabilið 1.1. - 31.3. og hinsvegar tímabilið 1.4. - 31.8.
Fyrstu þrjá mánuði ársins hafði styrking krónunnar og lækkandi verð á erlendum mörkuðum neikvæð áhrif á ávöxtun margra leiða. Vinsamlegast athugið að verið er að skoða stutt tímabil og getur ávöxtun sveiflast mikið þegar litið er á einungis fáa mánuði eins og hér. Þegar ávöxtun er svo reiknuð á ársgrundvelli, magnast sveiflan enn frekar.
Ávöxtun fyrstu þrjá mánuði ársins var á þessa leið:
Ávöxtun í séreignarleiðum 1. janúar - 31. mars 2005
Raunávöxtun Raunávöxtun
á tímabilinu á ársgrundvelli
Leið 1: Innlend skuldabréf, innlend og erlend hlutabréf -0,4 -1,7
Leið 2: Innlend skuldabréf 1,7 6,9
Leið 3: Alþjóðlegur vísitölusjóður hlutabréfa -3,0 -11,3
Leið 4: Evrópskur vísitölusjóður hlutabréfa 3,2 13,2
Leið 5: Bandarískur vísitölusjóður hlutabréfa -4,4 -16,3
Leið 6: Alþjóðlegur vaxtasjóður hlutabréfa -6,9 -24,7
Leið 7: Tæknisjóður -8,7 -30,6
Leið 8: Heilsu- og líftæknisjóður -5,7 -20,8
Leið 9: Innlend hlutabréf 14,3 70,4
Leið 10: Alþjóðlegur virðissjóður hlutabréfa -2,5 -9,8
Breytingarnar þann 1. apríl fólust í örstuttu máli í eftirfarandi: Nýrri sparnaðarleið var bætt við, Leið 1: Verðtryggður innlánsreikningur. Gamla sparnaðarleið 1 skipti um nafn og heitir nú Leið 3: Hlutabréf og skuldabréf. Allar hlutabréfaleiðirnar 3-10 voru sameinaðar undir einn hatt í Leið 4: Hlutabréf og samsettir fjárfestingarkostir. Í þeirri leið er einnig að finna (til a.m.k. helminga) höfuðstólstryggð skuldabréf sem tengd eru hlutabréfavísitölum.
Tilgangur breytinganna var að tryggja jafna og góða ávöxtun í öllum sparnaðarleiðum og einfalda sjóðfélögum val á sparnaðarleiðum. Ef marka má fyrstu mánuði hins nýja fyrirkomulags hefur það tekist vel eins og sést hér að neðan. Ekki má þó eingöngu þakka góða ávöxtun allra leiða þessum breytingum. Hagstæðari þróun krónunnar og ávöxtun á innlendum og erlendum mörkuðum hafði einnig áhrif.
Ávöxtun í séreignarleiðum 1. apríl - 31. ágúst 2005
frá 1. janúar til 31. mars 2005
Raunávöxtun Raunávöxtun
á tímabilinu á ársgrundvelli
Leið 1: Verðtryggður innlánsreikningur 1,8 4,4
Leið 2: Skuldabréf 2,3 5,6
Leið 3: Hlutabréf og skuldabréf 3,8 9,5
Leið 4: Hlutabréf og samsettir fjárfestingarkostir 10,6 27,4
Vinsamlegast athugið að ofangreindar ávöxtunartölur gefa til kynna meðalávöxtun á tilgreindum tímabilum. Það fer svo eftir því hvenær sjóðfélagi fjárfesti í tiltekinni leið, hvaða ávöxtun hann fær á sína inneign.
Lífeyrissjóðurinn Lífiðn Jónína B. Bjarnadóttir