Fréttir frá 2005

10 6. 2005

Friðjón hættir

Friðjón Rúnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðsins Lífiðnar, hefur sagt starfi sínu lausu hjá sjóðnum frá og með 1. október 2005. Friðjón hefur starfað hjá Lífiðn í 7 ár og skilar mjög góðu búi. Lífiðn stendur tryggingarlega fremst meðal lífeyrissjóðanna. Friðjón tekur við starfi sem framkvæmdastjóri fjárfestingarsviðs Sjóvár innan skamms. Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri verðbréfafyrirtækisins Virðingar hf. hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri til bráðabirgða til næstu fjögurra mánaða og hefur hann störf innan skamms.

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?