11 25. 2004
- Ítarupplýsingar
Lífiðn er einn mjög fárra lífeyrissjóða sem á vel fyrir skuldbindingum. Hjá flestum sjóðannan blasir við lækkun réttinda um næstu áramót, á meðan hið gagnstæða virðist verða uppá teningnum hjá Lífiðn. Launamenn sem ekki eru bundnir lífeyrissjóðum samkv. kjarasamning geta valið í hvaða sjóð þeir greiða. Vaxandi fjöldi þessa fólks velur Lífiðn.Samkvæmt lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða nr. 129/1997 er öllum þeim sem stunda launaða atvinnu skylt til að tryggja sér lágmarkslífeyrisréttindi með því að greiða í lífeyrissjóð. Launamönnum er jafnframt rétt og skylt að vera í lífeyrissjóði þess starfshóps eða starfstéttar sem þeir tilheyra.
Öllum félagsmönnum er starfa á vinnusvæði neðangreindra félaga og eru launamenn, er rétt og skylt að greiða til Lífeyrissjóðsins Lífiðnar. Greiðsluskylda gildir fyrir meistara, sveina og nema.
1. Rafiðnaðarsamband Íslands
· Félag tæknifólks í rafiðnaði
· Félag nema í rafiðnum
· Félag símsmiða
· Rafiðnaðarfélag Norðurlands
· Félag íslenskra rafvirkja
· Félag rafiðnaðarmanna, Suðurlandi
· Rafiðnaðarfélag Suðurnesja
· Félag rafeindavirkja
· Félag íslenskra símamanna
· Félag sýningarmanna við kvikmyndahús
2. Matvæla- og veitingasamband Íslands
· Félag íslenskra kjötiðnaðarmanna
· Félag matreiðslumanna
· Félag framreiðslumanna
· Bakarasveinafélag Íslands
· Félag nema í matvæla- og veitingagreinum
Launafólk sem ekki er bundið af ákveðnum kjarasamningum hefur frjálst val um í hvaða lífeyrissjóð það greiðir. Starfsfólk Lífeyrissjóðsins Lífiðnar hefur fundið fyrir vaxandi áhuga á sjóðnum og hefur þeim sem ekki eiga skylduaðild að sjóðnum farið fjölgandi. Er það væntanlega vegna þess hve vel sjóðurinn stendur en á árinu 2002 voru áunnin réttindi sjóðfélaga hækkuð um 22,4% og lífeyrisgreiðslur hækkaðar um 15,5%.
Lífiðn á fyrir skuldbindingum sínum (sem mælt er í svokallaðri tryggingafræðilegri stöðu) og rúmlega það, en um síðustu áramót þá átti sjóðurinn 6,4% eignir umfram skuldbindingar. Þessi góða staða er nánast einsdæmi hjá lífeyrissjóðum í dag, sem margir hverjir hafa neikvæða tryggingafræðilega stöðu. Það er von sjóðsins að áfram takist að halda sjóðnum á þessari braut með öruggri og varfærinni fjárfestingarstefnu svo tryggja megi sjóðfélögum áfram öruggan lífeyri.