Fréttir frá 2004

12 13. 2004

Sjálfboðavinna rafiðnaðarmanna

Stór hópur rafiðnaðarmanna úr Straumsvík hefur á undanförnum mánuðum unnið í sjálfboðavinnu við uppsetningu á bruna-viðvörunarkerfi í Krýsuvíkurskóla Stór hópur rafiðnaðarmanna úr Straumsvík hefur á undanförnum mánuðum unnið í sjálfboðavinnu við uppsetningu á bruna-viðvörunarkerfi í Krýsuvíkurskóla, þar sem rekið er meðferðarheimili fyrir langt leidda vímuefnaneytendur.  Samtals hefur hópurinn gefið um 480 vinnustundir og ef miðað er við algengt verð á útseldri vinnu rafiðnaðarmanna er virði þessa framlags um 1,4 milljónir króna.   Eftir að krafa var gerð um að brunaviðvörunarkerfi yrði sett upp á staðnum fór áhugafólk um starfsemina á stúfana og fékk kerfið sjálft á mjög góðum kjörum. Til að kerfið nýttist sem skyldi þurfti hins vegar að kosta til mikilli vinnu við uppsetningu þess og þar komu Straumsvískir rafiðnaðarmenn til sögunnar. Til þeirra var leitað eftir aðstoð og viðbrögðin voru hreint út sagt frábær. Verkinu er nú loks lokið, en hópurinn hefur farið ótal ferðir til Krýsuvíkur svo verkið mætti klárast. Framtak þessara félaga okkar er til mikillar fyrirmyndar.

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?